innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Varðandi fyrri spurninguna er hugmyndin sú að félagið geti orðið einhvers konar snjóbolti sem byggir að ákveðnu marki upp eigið fé en að gjaldtakan eigi þó að kallast á við verkefnin og samgöngubæturnar. Þetta er að erlendri fyrirmynd og það er hugsunin. Engu að síður þarf að vera samhengi milli þess hvaða verkefni er farið í, hvar gjaldtakan er o.s.frv. Ég held að það sé hluti af því að halda sátt um verkefni innviðafélagsins. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að Kjalarnesið fari inn í félagið frekar en önnur verkefni. Félagið hefur ákveðið sjálfstæði til þess. Aftur á móti er þetta eitt af stjörnumerktu verkefnunum á samgönguáætlun sem geta komið til skoðunar og þá er hjáleið eitt af því sem þarf að skoða. Hluti af þeirri greiningu sem farið verður í er hvort hjáleiðir teljist nægjanlegar til þess að þetta geti fallið undir verkefni innviðafélagsins sem ég ætla ekki að slá föstu á þessu stigi.