innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hv. þingmaður heldur sig við þessa málsgrein sem þýðir að sú hugmyndafræði sem okkur var kynnt milli funda af þeim sérfræðingi sem fer með þetta gengur ekki upp. Það er ekkert flókið. Hv. þingmaður heldur því opnu að Kjalarnesið sé stjörnumerkt. Það þarf engan sérfræðing til að átta sig á því að það er engin hjáleið fram hjá Kjalarnesi, ekki nema fara hringveginn öfugan, Uxahryggi eða eitthvað slíkt. Þetta sýnir bara að við erum því miður ekki búin að ræða þetta mál með neinum hætti.
Hv. þingmaður vísaði til þess að hægt væri að setja einbreiðar brýr í innviðafélagið. Ég spyr sömuleiðis um hjáleiðirnar þar því það er forsendan fyrir því að innviðafélagið geti tekið við þeim. Sömuleiðis talaði hv. þingmaður um Fljótagöng. Hér er búið að lofa Fljótagöngum á næsta ári. Miðað við þær upplýsingar sem við höfum bestar munu veggjöld geta verið um 15% af framkvæmda- og rekstrarkostnaði Fljótaganga, sem búið er að lofa, en ríkissjóður þyrfti að koma með 18,5 milljarða inn í þau. Ég spyr hv. þingmann, vegna þess að ég veit ekki um neinn sem hefur fundið þá fjármuni einhvers staðar: Hvar eru þeir? Er þetta innihaldslaust loforð um Fljótagöngin? Ég hygg að það sé mjög mikilvægt að fólk fái að vita það vegna þess að margir hafa mjög miklar væntingar til Fljótaganga en þó liggur alveg fyrir miðað við þær upplýsingar sem við fengum frá sérfræðingi á göngunum, ekki í nefndinni af því að þetta var ekki rætt í nefndinni, að veggjöldin nái bara upp í 15% og að 18,5 milljarða framlag þurfi úr ríkissjóði til að byggja Fljótagöng. Hvar eru þeir peningar? Ef þeir eru ekki til staðar, er þetta þá ekki innihaldslaust loforð?