innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þetta andsvar sem gefur færi á því að útskýra samspil samgönguáætlunar og innviðafélags. Þingmaðurinn misskildi orð mín varðandi það að innviðafélagið takist á hendur að útrýma einbreiðum brúm á Austurlandi. Ég var þvert á móti að segja að ef verkefni flytjast í innviðafélag sem nú eru á samgönguáætlun skapast svigrúm í samgönguáætlun. Tafla í nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar nefnir m.a. verkefnið Breiðbalakvísl – Fossálar, þar sem nú eru tvær einbreiðar brýr, sem hægt væri að fara í ef 6,3 milljarðar myndu flytjast af samgönguáætlun í innviðafélag. Það er því ekki innviðafélagið sem fer í þetta heldur Vegagerðin á grundvelli samgönguáætlunar. Það verður farið í Fljótagöng. Ef skalinn á verkefnum sem flytjast í innviðafélag er nógu mikill skapast svigrúm innan samgönguáætlunar til að fjármagna Fljótagöng beint. Ef það dugar ekki til þarf sérstaka fjármögnun (Forseti hringir.) og hún mun koma fram til þess að yfirlýsingar um Fljótagöng gangi eftir.