157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:09]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka flutningsmanni, hv. þm. Degi B. Eggertssyni, fyrir yfirferðina. Mig langar að byrja á að vitna í nefndarálitið frá meiri hlutanum þar sem fram kemur, með leyfi forseta:

„Aftur á móti lýsa verkalýðshreyfingar (á borð við ASÍ, BSRB og VR) ýmsum fyrirvörum við útfærsluna á félaginu. Meðal annars er nefnt að hætta sé á einkavæðingu á innviðum og tvöfaldri skattheimtu og talið er að veggjöld muni leggjast þungt á lág- og millitekjufólk.“

Í þessu samhengi langar mig að spyrja, af því að áhyggjur af því hafa verið viðraðar og hafa líka komið fram í ræðum, hvort færsla eigna inn í félagið hafi verið skoðuð í samhengi við 40. gr. stjórnarskrárinnar?