innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og ítreka það sem ég sagði í ræðu minni að þessar ábendingar verkalýðshreyfingarinnar standa hjarta mínu mjög nærri. Ég tek undir áherslu þeirra á að þar sem veggjöld séu þurfi að tryggja bæði gjaldfrjálsar hjáleiðir og öflugar almenningssamgöngur til að koma til móts við fólk. Ég sé tækifæri í því að innviðafélag sem annaðist innheimtu á öllum þessum leiðum gæti stillt upp afsláttarkjörum fyrir stórnotendur og þá sem koma langt að, svo dæmi sé tekið. Það eru ýmis færi til þess.
Þegar um er að ræða að eignir færist inn í félagið finnst mér ekki ólíklegt að koma þyrfti til 6. gr. heimild í fjárlögum eins og við sambærileg mál en væntanlega yrði farið í það í tengslum við einstaka samninga um verkefni sem fara til innviðafélagsins.