innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hv. þingmaður nefnir réttilega 6. gr. leið en það hefur nefnilega komið upp í umræðunni að skv. 40. gr. stjórnarskrárinnar sé ekki búið að svara því hvort heimilt sé að færa þær eignir sem þjóðin var búin að byggja, borga fyrir og á sannarlega inn í félag sem má selja úr sjálfu sér. Munurinn liggur þar. Ef þetta væri venjulegt ríkisfélag eða ríkisstofnun, svo ég noti orð sem auðvelt er að skilja, þá væri málið kannski ekki svona flókið en með tilkomu söluheimildar í sjálfu sér verður 40. gr. aðeins torskildari í þessu samhengi.