innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil ítreka þakkir fyrir andsvarið. Eitt af því sem þarf að huga að er að standa rétt að þessu og við myndum fara yfir lagalegu hlið málsins í tengslum við samninga um einstök verkefni. Miðað við þá býsna breiðu samstöðu sem er á Alþingi um að gera stórátak í samgöngumálum og uppbyggingu innviða, greiða niður innviðaskuld og í raun lyfta upp samgöngumálum um land allt, þá hef ég hvorki áhyggjur af því að við virðum ekki lögformlega hlið mála né að við höfum ekki breiða samstöðu um það á þingi ef nota þarf 6. gr. heimildina í þessu skyni.