157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:14]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir framsöguna. Mig langar að herma upp á hann texta úr greinargerð með frumvarpinu í ljósi þess hvernig hæstv. innviðaráðherra svaraði óundirbúinni fyrirspurn úr þessari pontu. Textinn er, með leyfi forseta:

„Til greina kemur að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum sem tilheyra ríkinu í formi hlutafjár sem væru til þess fallin að styrkja tekjugrunn þess.“

Ég átti orðastað a.m.k. tvisvar sinnum við hæstv. innviðaráðherra og mér varð t.d. á orði að nefna Hvalfjarðargöng. Ég velti því upp hvort hægt væri að leggja Hvalfjarðargöng inn í þetta félag og hefja þá þegar rukkun í gegnum þau göng á grundvelli annarra framkvæmda heldur en t.d. í Hvalfjarðargöngunum.