innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en eftir stendur að ráðherrann gaf skýra yfirlýsingu um að þetta ætti ekki við og eiginlega var ég að fiska eftir því hjá hv. þingmanni að ráðherrann hefði ekki farið með rétt mál. Hér hafa verið nokkrar deilur um það hver aðkoma þingsins yrði að þessum kostum sem innviðafélaginu standa til boða, þ.e. að við höfum ekki áhrif á val innviðafélagsins og ég skil það ágætlega. Aftur á móti sé ég alveg fyrir mér ákveðinn freistnivanda, t.d. hjá þingmönnum, að merkja færri kosti til vals fyrir innviðafélagið frekar en að taka þá ýtrustu. Einnig langar mig að heyra hjá hv. þingmanni hvernig hann sæi fyrir sér, t.d. miðað við þá upplýsingagjöf sem þarf að vera, að skráð fyrirtæki gætu t.d. keypt hlut í innviðafélaginu ef ríkinu þóknaðist að selja hlut í því. Hvernig sér hann það fyrir sér?