157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið og ítreka að ég tel hvorki ágreining milli mín og innviðaráðherra um það að Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót geti færst þarna inn né um þá hugsun að taka þurfi afstöðu til þess hvort og á hvaða tímapunkti núverandi Hvalfjarðargöng færist inn í félagið ef ráðist verður í tvöföldun Hvalfjarðarganga. Ég held að allir sjái það í hendi sér að ný Hvalfjarðargöng með gjaldtöku við hlið þeirra eldri hljóti að kalla á gjaldtöku í eldri göngunum á einhverjum tímapunkti. Hvað varðar sölu á hlut í þessu félagi þá held ég að það sé algerlega ótímabær spurning. Ég held að við verðum að haga málum þannig, og horfi til Danmerkur og Færeyja, að fjármunirnir sem verða til við innheimtu veggjalda haldist inni í félaginu og fari til frekari samgöngufjárfestinga en ekki út sem arður til einhverra einkaaðila vegna þess að það bætir ekki krónum inn í þennan heildarpott, sem er jú stóra málið.