innviðafélag.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna og óska sjómönnum til hamingju með þessa helgi og sjómannadaginn á morgun. Ég held að við séum öll sammála um að við verðum einhvern veginn að komast út úr þeirri stöðu sem við horfumst í augu við með því að bæta samgöngur um allt land. Þetta er ein leið til þess og ég er hlynntur því að þessi leið verði farin. Ýmislegt er þó óljóst. Ég vil í fyrsta lagi spyrja hv. þingmann um það sem rætt er í nefndaráliti og frumvarpinu og hefur verið nefnt, að innviðafélagi verði gert heimilt að rukka veggjald á eldri mannvirkjum. Þar kom til tals að rukka veggjald á Reykjanesbrautinni. Sér hv. þingmaður það fyrir sér? Nú er ekki augljós hjáleið þar, ekki einföld eða stutt. Þetta er framkvæmd sem búið er að gera. (Forseti hringir.) Hvernig sér hv. þingmaður það fyrir sér ef hugmyndin er að rukka veggjald á Reykjanesbraut; verða þá einhverjar frekari framkvæmdir, hver verður hjáleiðin og finnst honum það í lagi?