innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið. Það er rétt að í greinargerðinni með frumvarpinu er þessu velt upp. Við skerptum svolítið á hugsuninni um þetta í nefndarálitinu með því að gjaldtaka væri fyrst og fremst í tengslum við ný verkefni eða samgöngubætur. Í mínum huga sé ég ekki fyrir mér að núverandi stofnbrautir verði lagðar inn í félagið og hafin gjaldtaka þar án þess að hún sé í tengslum við einhverjar nýjar framkvæmdir eða samgöngubætur á þeim svæðum. Ég held að það sé ákveðinn lykill í því að ná samstöðu um þetta. Aftur á móti eru eiginlega engin svæði án einhverra hugmynda um samgöngubætur, ekki beinlínis Reykjanesbraut en Setbergsgöng hafa t.d. verið nefnd sem lausn á tappanum í Hafnarfirði, auðvitað í tengslum við Reykjanesbrautina beint og óbeint. (Forseti hringir.) Þau eru komin inn stjörnumerkt í breytingartillögu umhverfis- og samgöngunefndar við samgönguáætlun og er rétt að halda því til haga. Greiningar á hjáleiðum á Reykjanesi hef ég ekki séð.