157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:22]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er gott að heyra að það standi ekki til að leggja Reykjanesbrautina inn í komandi innviðafélag og taka upp veggjöld þar nema í tengslum við einhverjar meiri háttar framkvæmdir. Reykjanesbrautin er auðvitað fullbúin og menn myndu ekki vera ánægðir með það ef þeir þyrftu allt í einu að borga veggjald fyrir kannski einhverjar smávægilegar lagfæringar á þeim vegi sem á auðvitað ekki heima í innviðafélagi. Ég er ánægður að heyra þetta.

Ég vil nýta mitt seinna andsvar til þess að spyrja hv. þingmann um stjörnumerkingar í samgönguáætluninni. Það er svolítið óskýrt og ekki alveg augljóst hvað innviðafélag mun taka til bragðs ef þingið stjörnumerkir nokkra kosti eins og tvöföldun Hvalfjarðarganga, Sundabraut o.s.frv. og einhverja aðra kosti en fjárfestar og innviðafélag velja auðvitað þann kost sem er hagkvæmastur. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að við getum stýrt betur þessari (Forseti hringir.) útgönguleið innviðafélags að velja hagkvæmasta og arðbærasta kostinn en kannski ekki þann kost sem Alþingi vill fara í?