innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta síðara andsvar og draga fram að samgönguáætlun er þarna grunnurinn og leiðarljósið. Hún er auðvitað leiðarvísir innviðaráðherra í samningum hans við innviðafélag um hvaða verkefni koma til greina í fyrsta lagi. Það að tryggja aðkomu nefnda Alþingis, eins og við gerum með breytingartillögu við þetta frumvarp, ætti líka að gefa færi á að ræða nákvæmlega þá hluti sem þingmaðurinn nefnir. Við höfum stjörnumerkt m.a. Fljótagöng sem hér eru nefnd, jafnvel þó að þau séu ekki umferðarmikil eða hagkvæm í þeim skilningi. Því er hugsun þingsins og þingmeirihlutans sú að verkefni sem eru í þeim skilningi óarðbær geti átt heima í innviðafélagi ef það er betra og leiðir til þess að þeim sé flýtt en forgangsröðunin og sýnin á að koma fram í samgönguáætlun. Innviðafélagið gæti viljað flýta einhverju eða bæta við. (Forseti hringir.) Þá á þingið að vera til samtals og hafa eitthvað um það að segja með breytingu á samgönguáætlun (Forseti hringir.) eða framgöngu innviðaráðherra í þessum samningum.