innviðafélag.
Virðulegi forseti. Þetta er svolítið skrýtið mál vegna þess hvernig ríkisstjórnarmeirihlutinn hefur unnið það. Það er, leyfi ég mér að fullyrða, full samstaða um það að fara í átak þegar kemur að innviðum og samgöngumannvirkjum. Það er góð reynsla af því að fara þá leið að fela öðrum aðilum að byggja og reka samgöngumannvirki á Íslandi. Þá er ég sérstaklega að vísa í Hvalfjarðargöngin sem urðu hvatning og fordæmi Færeyinga til að fara í miklar samgönguframkvæmdir. Því miður héldu menn ekki áfram með slíka tilhögun en þó eru dæmi sem hafa ekki gengið jafn vel eins og Vaðlaheiðargöng, þó svo að þau séu náttúrlega risin. Öll þau varnaðarorð, sem undirritaður og fleiri voru með á sínum tíma, reyndust því miður hafa innihald sem gerði það að verkum að forsendurnar sem lágu til grundvallar gengu ekki eftir, en það er samt sem áður án nokkurs vafa samgöngubót.
Íslendingar hafa gengið í gegnum ýmislegt, Covid og Reykjaneselda, og þegar við tölum um innviðaskuldina er kostnaðurinn við þá viðburði nokkurn veginn jafn innviðaskuldinni. Við breytum því ekki. Við vitum ekki hvernig mál hefðu þróast ef við hefðum ekki lent í þeim miklu hremmingum sem betur fer fóru jafn vel, held ég, eins og gat orðið. Núna erum við komin með frumvarp um innviðafélag þar sem þingheimur er sammála um markmiðin. Það sem hefur gerst í umfjöllun nefndarinnar er að samviskusamlega hefur nefndin fengið alla þá umsagnaraðila sem hafa viljað koma að málinu, hafa sent inn umsagnir og fengið að tala fyrir sínu máli. Til að gera langa sögu stutta voru nokkurn veginn allir umsagnaraðilar sammála um að óljóst væri hver framkvæmdin yrði en höfðu áhyggjur af því að þetta væri að búa til vafningsleið og fannst það vera skrifað inn í frumvarpið að t.d. gætu menn sett inn í félagið t.d. Reykjanesbraut, nýframkvæmdir eins og Sundabrautina sem menn töldu að gæti orðið arðbært að fara í, jafnvel ný Hvalfjarðargöng. Það yrði síðan notað til þess að greiða fyrir aðrar framkvæmdir sem eru ekki arðbærar eins og jarðgöng víðs vegar um landið þar sem færri búa og minni ferðamannastraumur er.
Þetta er verklag sem þessi ríkisstjórn hefur komið með. Ég er nú búinn að vera hér á Alþingi frá árinu 2003 og tekið þátt í nefndarstarfi, bæði sem formaður, varaformaður og sömuleiðis sem stjórnarandstæðingur, en almenna reglan er sú að svo setjast menn yfir athugasemdirnar og reyna að vinna úr því. Þó svo að menn séu algerlega meðvitaðir um það að stjórn og stjórnarandstaða verði ekki sammála er alla vega markmiðið í sjálfu sér að menn séu sammála um hvað þeir séu ósammála um. Í þessu risamáli var þetta aldrei rætt, aldrei farið yfir þessar athugasemdir heldur var málið tekið út á hálftíma, dreift var nefndaráliti meiri hlutans og ef nefndarálitið er rétt túlkun á lögunum náum við ekki markmiðum frumvarpsins.
Ég spurði áðan háttvirtan framsögumann um kjarnann í nefndarálitinu sem er á blaðsíðu þrjú, með leyfi forseta, og ég ætla að lesa það upp:
„Meiri hlutinn leggur áherslu á gagnsæi í reikningshaldi félagsins þannig að samband veggjalda og tiltekinnar samgönguframkvæmdar sé ljóst. Það mætti t.d. gera með stofnun dótturfélaga um hverja framkvæmd fyrir sig eins og nefnt er í greinargerð með frumvarpinu og í umsögn lífeyrissjóða. Slíkt fyrirkomulag ætti líka að tryggja að veggjald flokkist ekki sem skattur heldur sem þjónustugjald. Kostnaðartengslin ættu að tryggja að efnisleg tenging verði á milli gjaldskyldunnar og þeirrar þjónustu sem notandinn fær.“
Þetta er mjög skýr texti. Þarna er verið að vekja athygli á því að það sé ekki — þótt það séu engar lagabreytingar — verið að fara þessa vafningsleið heldur verði bara hver framkvæmd fyrir sig tekin. Nefnum dæmi, Hvalfjarðargöngin. Ef við tvöföldum þau borga menn þjónustugjald fyrir Hvalfjarðargöngin og ekki neitt annað. Gott og vel. Ef við gerum það er eðli þjónustugjalda þannig og lagaleg skilgreining þjónustugjalda þannig að við verðum að hætta að taka þjónustugjaldið þegar við erum búin að borga upp göngin. Með öðrum orðum: Þú myndar aldrei eigið fé í innviðafélaginu og líka er það að það er vandasamt að sjá hvernig hægt er að fá betri fjármögnun heldur en einkaaðilinn myndi fá, ef þessi leið er farin. Þá getum við alveg eins haldið okkur við það að bjóða út verkefnin — að vísu var ekki boðið út heldur var frumkvæðið frá aðilum þegar var farið í Spalarverkefnið — því þá þurfum við ekkert á innviðafélagi að halda. Við erum auðvitað með fyrirkomulag eins og Betri samgöngur sem hræðir og það er eitthvað sem enginn ber ábyrgð á og enginn veit nákvæmlega hvað er að gera en er farið að kosta skattgreiðendur 500 milljónir á ári.
Síðan er það þannig, virðulegur forseti, að við skrifum nefndarálitið út frá okkar bestu mögulegu upplýsingum sem er nefndarálit meiri hlutans og þær athugasemdir sem komu fram í nefndinni. Síðan er það þannig að við fengum til fundar við okkur sérfræðinginn sem er að vinna við þetta í innviðaráðuneytinu. Hans útfærsla er bara allt önnur, hún er allt önnur. Hún er einhvern veginn með þeim hætti að hugmyndin er að þú sért með innviðafélag til að fá betri fjármögnun, ódýrari fjármögnun heldur en ef einkaaðilar myndu gera þessa hluti.
Í ofanálag er sérstök skilgreining sem heitir sérstakt samgöngukerfi, ef ég man rétt, sem hefur ekki sést áður í lagatexta eða annars staðar. Þar er hugsunin sú að þar er verið að byggja á forsendum sem eru í því Evrópuregluverki sem menn þurfa að vinna eftir og á sér fordæmi annars staðar. Skilgreiningin á því er að það þarf að vera svona 150 km leið. Þú getur tekið Sundabrautina, Hvalfjarðargöngin og jafnvel Melasveitina og sett það inn í sérstakt verkefni. Þá ertu að fá betri fjármögnun vegna þess að miðað við þær upplýsingar sem við fáum frá þessum aðila eru Hvalfjarðargöngin langarðbærust, Sundabrautin ekki jafnmikið og örugglega ekki Melasveitin en saman eru þetta stór verkefni sem vega hvert annað upp. Þá er ekki hugsunin að hafa þjónustugjald heldur gjald sem gerir það að verkum að það sé heimilt að vera með ákveðna arðsemi sem myndi skila sér inn í móðurfélagið þannig að það sæti með ákveðna fjármuni sem það gæti nýtt sér í önnur verkefni í framhaldinu. Þetta er allt annað en stendur í nefndaráliti meirihlutans, bara allt annað. Vegna þess að þetta hefur ekki verið rætt og við höfum ekki fengið neina aðra til fundar við okkur út af þessu máli vitum við ekki hvaða útfærsla er rétt.
Það liggur hins vegar fyrir að meirihlutaálit fjárlaganefndar er lögskýringargagn. Þetta er ekki bara blaðagrein eða eitthvað slíkt. Þetta er lögskýringargagn og ef við tökum það sem stendur í meirihlutaálitinu eru ekki nein snjóboltaáhrif eins og talað hefur verið um. Þá verða menn bara að vera með sérgreint þjónustugjald fyrir hverja framkvæmd fyrir sig og geta ekki tekið neinn umframhagnað út úr því sem á að nýtast til annarra framkvæmda. Þetta er bara eitthvað sem ég veit ekki hvort fer vel á því að ræða hér inni í þingsal en auðvitað gerum við það. Það er ástæðan fyrir því að við segjum að ríkisstjórnin verði að fara yfir þetta aftur og koma með skýrt frumvarp þar sem við vitum hvað á að gera með þetta félag því að þú getur ekki tekið afstöðu til þess, hversu sammála því eða ósammála þú ert, ef það er ekki skýrt hvað er á ferðinni.
Það er hins vegar ljóst að það eru ákveðnir hlutir sem liggja til grundvallar. Það á að stjörnumerkja, eins og það er kallað, en það er ekkert skilgreint. Við höfum ekkert rætt hvernig það fer fram. Við höfum heldur ekki rætt athugasemdir fjármálaráðs sem lagði áherslu á að hér væri mikill freistnivandi, að færa í rauninni fjármuni út úr A-hluta ríkissjóðs þannig að það komi ekki fram eins og þeir væru í A-hlutanum í ríkisreikningi og annað slíkt. Að hafa þetta sem C-hluta félag þýðir að reka eigi það á markaðslegum forsendum. Það á ekki að vera ríkisábyrgð, það á ekki að vera ríkisframlag og það á bara að vera eins og það væri félag á markaði. Ef það uppfyllir ekki þau skilyrði getur það ekki verið C-hluta félag. Ef það getur ekki verið C-hluta félag ertu kominn með það inn í A-hlutann þannig að það þarf að fara með það nákvæmlega eins og í rauninni önnur verkefni sem við þekkjum í gegnum samgönguáætlun og fjármögnun þar í fjárlögum. Af hverju nefni ég þetta? Af því að þetta eru grundvallaratriði. Við verðum auðvitað að vita þetta og við vitum þetta ekki. Við höfum ekki rætt þetta. Meirihlutaálit fjárlaganefndar er á skjön við það sem alla vega sérfræðingurinn sem við hittum sagði og sem okkur fannst nú svona rökréttari útfærsla. Þetta er á skjön við það og það fer ekki saman.
Það liggur þá fyrir að innviðafélagið á að setjast niður og meta það þegar kemur að viðkomandi stjörnumerktum framkvæmdum hvort það treysti sér til að fara í það verkefni. Ein af forsendunum verður þá alltaf að vera að það verður að vera hjáleið, með öðrum orðum eru Hvalfjarðargöngin t.d. augljóst verkefni sem gæti farið í þetta innviðafélag vegna þess að þú getur keyrt fyrir Hvalfjörðinn. Tekjurnar af öllum þeim verkefnum samanlagt þurfa líka að vera yfir 50% af framkvæmd og rekstrarkostnaði. Ef menn ætla að fara í önnur verkefni sem bera sig ekki þarf að koma önnur fjármögnun. Menn eru búnir að ræða mikið Kjalarnesið og hv. þm. Dagur B. Eggertsson notaði það sérstaklega sem dæmi að það væri leið. Það væri hægt að taka þessa 6,3 milljarða sem eiga að fara í veginn um Kjalarnesið og setja það í innviðafélagið. Það er ekki hægt nema þú sért með einhverja hjáleið samkvæmt þessari skilgreiningu. Þetta er ekki bara eitthvað sem þingið ákveður heldur er þetta evrópskt regluverk sem við þurfum að vinna eftir. Menn eru búnir að ræða mikið um að skella Kjalarnesvegi þarna inn því að augljóslega keyra margir um hann og það er arðbær framkvæmd. Það er þó alveg ljóst og óumdeilt að samkvæmt regluverkinu er það ekki hægt nema í leiðinni myndu menn búa til einhverja hjáleið. Ég er nú búin að keyra Kjalarnesveginn miklu, miklu, miklu oftar en ég man og aldrei hefur mér dottið í hug að telja það. Það er engin önnur leið nema kannski bara að sigla og það er eitthvað sem er skemmtilegt en er ekki raunhæft fyrir fólk og ég á svo sem engan bát til að sigla þá leið frekar en flestir aðrir.
Virðulegi forseti, við erum á þeim stað að við erum með meirihlutaálit við frumvarp sem er ekki í samræmi við þær upplýsingar sem við fengum vegna þess að við fengum þennan sérfræðing inn. Ef við hefðum ekki fengið hann þá værum við augljóslega að benda á þetta. Þetta frumvarp gengur ekki upp miðað við meirihlutaálitið. Það segir sig sjálft. Hvað sem öllu líður, ef menn ætla að gera þetta almennilega, sem er gríðarlega mikilvægt því við erum sammála um það, þurfum við að fara í aðra fjármögnun til þess að fara í stór samgöngumannvirki. Auðvitað verðum við að ganga þannig frá því að það geti gengið upp og sporin hræða. Betri samgöngur eru gott dæmi um það að hægt er að gera þetta ekki nægilega vel og ýmis önnur dæmi má nefna.
Svo kemur að því, virðulegi forseti, að nú eru stjórnvöld byrjuð að lofa allra handa hlutum sem innviðafélagið á að leysa. Fljótagöngin eru skýrasta dæmið þar um. Fljótagöngin eru skýrasta dæmið þar um. Núna vorum við að ganga frá því í morgun, eða ekki við — í háttvirtri fjárlaganefnd kom meiri hlutinn og tók út fjármálaáætlun og veifaði hvítu flaggi og gafst upp á því verkefni. Það var alveg hreint og klárt, menn komu bara og sögðu: Forsendur eru breyttar, við ætlum að hafa milljarðs afgang á næsta ári. Hann fór bara í meðförum þingsins þegar menn voru að ganga frá styttingu bótatímabils. Þar fór sá afgangur en í ofanálag erum við að vinna eftir efnahagsspá Seðlabankans. Þeir spá mun lægri hagvexti sem þýðir mikið tekjutap og hærra atvinnuleysi sem þýðir aukin útgjöld upp á 7 milljarða en við ætlum ekki að gera neitt í því. Menn eru búnir að gefast upp á fjármálaáætlun, eru ekki með neina fjármuni í jarðgöng sem þurfa að koma hvort sem við göngum frá þessu innviðafélagi á eftir eða ekki. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef frá þessum sérfræðingum þarf í Fljótagöng, ekki hin, bara Fljótagöngin, 18,5 milljarða fjármögnun, 18,5 milljarða vegna þess að veggjöld standa bara undir 15% af framkvæmda- og rekstrarkostnaði.
Virðulegi forseti, þetta mál er ekki tilbúið og við erum ekkert farin að ræða hluti sem skipta gríðarlega miklu máli sem við erum að henda þarna á milli okkar. Hvernig ætlum við að hafa samspilið við samgönguáætlun? Það dugar ekki að segja: Við ætlum bara að stjörnumerkja. Menn verða að fara dýpra í umræðu um það. Hvernig ætla menn að tryggja aðkomu kjörinna fulltrúa að stærstu samgöngumannvirkjum landsins? Eða ætla menn ekki að gera það? Er það bara þannig að þjóðkjörnir fulltrúar verði einhverjir áhorfendur að því hvort og hvernig verður farið í stærstu samgöngumannvirki þjóðarinnar? Við þekkjum það alveg. Við fáum alveg kynningu frá Betri samgöngum í hv. fjárlaganefnd. Það gerir ekki neitt. Maður spyr þetta fólk sem maður hálfvorkennir að vera þarna: Hver tók ákvörðun um Keldnalandið? Hvernig ætlið þið að sjá til þess að Sæbrautarstokkurinn skili sér í meiri umferðarrýmd? Það eru bara engin svör og það ber enginn ábyrgð. Eru menn að búa það til að þetta verði eins og þegar við setjum málaflokkana undir Evrópusambandið, ef menn stíga það óheillaspor sem guð gefi að aldrei verði, að við þurfum bara að segja: Talið við fólkið í Brussel. Menn þurfa þá bara að tala skýrt um það. Er það þannig að menn vilji bara hafa hlutina þannig að þú sért með stjórnarmenn í félagi sem halda utan um öll stóru samgöngumannvirkin á Íslandi? Ráði hvað megi kosta miklu í þau? Ráði í hvaða verkefni verður farið? Því að breytingartillögur meiri hlutans ganga út á það að það sé algjört sjálfstæði þegar kemur að félaginu, þegar kemur að gjaldtöku. Það geta verið alveg rök fyrir því. Ég veit það ekki, við höfum lítið rætt það, reyndar ekki neitt. Er það svo að ríkisstjórnarmeirihlutinn sé að leggja það til að þegar kemur að stóru samgöngumannvirkjunum úti um allt land sem skipta mestu fyrir fólkið í landinu verði aðkoma Alþingis engin að öðru leyti en því að fylgjast með því í nefndum þingsins?
Nú er það þannig að nefndir þingsins geta bara fylgst með öllu sem þeim dettur í hug. Ja, alla vega hefur það verið þannig. Miðað við þennan texta sem er hér þá er ekkert sem segir að kjörnir fulltrúar geti haft áhrif á stóru samgöngumannvirkin á Íslandi. Nú vil ég ekki gera lítið úr tengivegum, allra síst einbreiðum brúm, mikilvægt er að við höldum áfram því verkefni sem hefur gengið ágætlega, gríðarlega mikil verkefni. En ætlum við að taka frá þjóðkjörnum fulltrúum og þar af leiðandi þjóðinni ákvarðanir varðandi Sundabraut, tvöföldun Hvalfjarðarganganna, jarðgöng um landið? Á það að fara eitthvað annað?
Ef þetta verður samþykkt óbreytt verður það þannig en það verður líka þannig að þau markmið sem ég taldi að hugmyndin væri með innviðafélagi ná ekki fram að ganga. Ef meirihlutaálitið er skoðað erum við að búa til fyrirkomulag þar sem þú getur ekki byggt upp eigið fé í félaginu og í rauninni að félagið sé þá óþarft og bara enn ein Vegagerðin því að við erum með Vegagerðina. Svo erum við með Betri samgöngur sem kosta nærri 500 milljónir á ári í rekstrarkostnað og eru að gera allra handa hluti sem enginn kjörinn fulltrúi virðist hafa áhrif á. Það er ekki gott en þegar ég talaði við viðkomandi sérfræðing sagði hann margt sem mér fannst vera mjög skynsamlegt, sem er ekki skrifað almennilega út hér. Ég tel t.d. að það hafi verið gerð mistök af hálfu samgönguyfirvalda og Vegagerðarinnar að leggja áherslu á það að Vegagerðin hanni jafn mikið eins og hún gerir. Maður hefur heyrt mjög mikið um kvartanir frá þeim sem taka þátt í slíkum útboðum, að það sé farin sú leið að Vegagerðin skilgreini og hanni, alla vega gangi frá forsendum, þannig að sveigjanleikinn sé nokkurn veginn enginn þegar kemur að viðkomandi samgöngumannvirkjum.
Ég er að vísa til þess að það eru aðrar leiðir færar. Það er hægt að fara þá leið sem er farin víðs vegar um heiminn, að samkeppni felist ekki bara í verðum heldur líka útfærslu. Ég er mikill áhugamaður um að við sjáum Sundabraut. Það er algjört forgangsmál. Það hefði verið mjög gott ef menn hefðu fengið færi á að koma með aðrar útfærslur sem myndu ná þeim árangri, virðulegi forseti, að við værum virkilega að auka umferðarrýmd eins og Sundabrautin á að gera, eða Sundagöng, sem ég tel að vísu að séu eina raunhæfa lausnin, og sömuleiðis að koma í veg fyrir þann skaða sem þær hugmyndir leiða til sem liggja núna fyrir og hafa fengið mjög hörð viðbrögð og mótmæli, bæði í Laugardal og í Grafarvogi sem er í mínu kjördæmi — málefnalegar athugasemdir sem eru fullkomlega skiljanlegar af hálfu íbúa. Ef menn hefðu komið með aðra hugsun að því máli þá tel ég að málið væri komið miklu lengra og við værum að sjá þetta verða að veruleika.
Aðalatriði máls, virðulegi forseti, er að við verðum að fá svör við því hvað menn eru að fara að gera. Við sjáum þá í nefndarálitinu, virðulegi forseti, að útfærslan uppfyllir illa skilyrði þjónustugjalda. Það er stórmál hvernig við göngum frá þessu því að ef gjaldtakan er ekki skilgreind nægilega vel í frumvarpinu þá lenda menn í vandræðum, menn lenda í dómsmálum. Félaginu er augljóslega ekki heimilt að innheimta skatta. Þjónustugjöld eiga bara að vera fyrir þjónustuna sem veitt er. Þegar þér er heimilt að taka þjónustugjöld er viðkomandi aðila, sama hver það er, ekki heimilt að taka meira heldur en sem nemur bara þjónustunni sem hann á að veita. Ef gengið er of langt er hægt að fara í mál við viðkomandi aðila og hann þarf að endurgreiða þjónustugjöldin vegna þess að hann er búinn að taka of mikið í sinn hlut.
Þetta er auðvitað nokkuð flókið mál en mál sem menn komast ekkert hjá því að fara í gegnum. Það er ótrúlega óskynsamlegt hjá ríkisstjórninni að undirbúa málið ekki betur og ef það er ekki undirbúið nógu vel að nota ekki þá þinglegu meðferð sem er til þess gerð til þess að laga mál eins og þessi. Til þess eru nefndarstörf og milljón dæmi um það að menn hafi breytt og lagað í meðförum nefndarinnar en það er ekki gert hér.
Annað sem liggur líka alveg fyrir, sýnist mér, er að menn ætli sér að setja Vaðlaheiðargöng og Ölfusárbrúna inn í félagið. Þá þurfa menn líka að vera með það algerlega á hreinu hvernig það er gert. Ég sé ekki að það sé hægt að gera það með neinum öðrum hætti heldur en að gera það í gegnum fjárlög og 6. gr. heimildir þar. Hvað sem því líður þurfum við að svara nokkrum spurningum. Í fyrsta lagi: Er túlkun meiri hluta fjárlaganefndar það sem koma skal? Eigum við að skilja málið þannig? Ef svo er þá náum við ekki þeim markmiðum sem lagt er upp með innviðafélaginu. Það er alveg skýrt og meirihlutaálitið er lögskýringargagn. Ef menn ætla ekki að fara þá leið þá þarf að skrifa það út. Það bara segir sig sjálft. Það dugar ekki að láta þetta standa með þessum hætti. Það verður að vera skýrt hvers konar gjöld félaginu er heimilt að taka. Ef það eru bara þjónustugjöld náum við ekki snjóboltaáhrifunum og menn þurfa að skilgreina það sérstaklega hvers konar gjöld er heimilt að taka og að það sé lagaheimild fyrir því og það standist önnur lög og stjórnarskrá. Við verðum að hafa það á hreinu hvert samspilið er við samgönguáætlun og hver aðkoma kjörinna fulltrúa er. Menn verða þá líka að segja bara skýrt: Við ætlum ekki að hafa aðkomu kjörinna fulltrúa. Eins og þetta stendur núna og eins og í orðaskiptum framsögumanns og hv. þingmanna þá var það alveg skýrt að það er bara kynning í nefndum þingsins.
Er það niðurstaðan? Við verðum að vita það, virðulegi forseti. Það er ekki í samræmi við það, eftir því sem ég best veit, sem gerist í öðrum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Ég bið fólk aðeins að hugsa um það. Nú er búið að samþykkja þessi lög, eina aðkoman er kynning í nefndum. Síðan fara hv. þingmenn í sín kjördæmi og útskýra fyrir kjósendum að þegar kemur að stærstu samgöngumannvirkjunum, sem kjósendur eru búnir að biðja um, hafa kjörnir fulltrúar ekkert með það að gera nema að þeir geta alveg talað sig hása þegar fulltrúar innviðafélagsins koma í nefndina. Eins og staðan er núna lítur út fyrir að þannig ætli menn að framkvæma þetta. Ég held að það sé mikilvægt að allir viti af því að það er verið að leggja til að aðkoma kjörinna fulltrúa að stærstu samgönguframkvæmdum þjóðarinnar sé engin.