157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[11:55]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Það er greinilegt að hugur hans stendur með félaginu, að því takist vel upp í að hraða framkvæmdum og að við náum hraðri uppbyggingu á samgöngukerfinu. Ekki veitir af, allir eru sammála um það. En það er þarna eitt og annað sem er ágætt að fara yfir og það sem er helst gagnrýnt hér af hv. þingmanni er sjálfstæði félagsins en það er einmitt hluti af því að það geti verið sérhlutafélag. Ef við förum hér og höfum afskiptin mun meiri, ríkisafskiptin mun meiri og afskipti stjórnvalda mun meiri, þá erum við um leið að taka það úr C-hlutanum. Vonandi gerir hv. þingmaður sér grein fyrir því.

Einnig er alveg ljóst það sem er ávarpað varðandi það að það myndist eitthvert eigið fé inni í félaginu, að það er einmitt komið til móts við þann þátt í breytingartillögunum í frumvarpinu, gott ef það er ekki breytingartillaga nr. 3, að við búum til þarna inni afl til þess að hefja næstu framkvæmd. Það er eitthvað sem ég taldi fyrir fram að væri mikilvægt fyrir félagið og framgöngu þess, að það myndist þarna afl til þess að hefja nýja og nýja framkvæmd, því það má ekki gleyma því, eins og kom ágætlega fram hjá hv. framsögumanni, að með því að framkvæmdir fari inn í þetta ágæta innviðafélag þá myndast meira rými til framkvæmda annars staðar í vegakerfinu.

Að öðru leyti þá þakka ég fyrir, eigum við segja, undirtektir um markmið félagsins (Forseti hringir.) og vonast svo sannarlega til þess að hv. þingmaður sjái að sú leið sem við erum að fara sé góð til framgöngu og uppbyggingar vegakerfisins.