innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið en eins og stundum þegar hv. þingmaður kemur í andsvar við mig þá hefur hann ekki hlustað á ræðuna hjá mér. (Gripið fram í.) Ég ætla þá að endurtaka kjarnann í ræðunni. Ég er að vitna í nefndarálit sem hv. þingmaður skrifaði undir, á bls. 3, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn leggur áherslu á gagnsæi í reikningshaldi félagsins þannig að samband veggjalda og tiltekinnar samgönguframkvæmdar sé ljóst. Það mætti t.d. gera með stofnun dótturfélaga um hverja framkvæmd fyrir sig eins og nefnt er í greinargerð með frumvarpinu og í umsögn lífeyrissjóða. Slíkt fyrirkomulag ætti líka að tryggja að veggjald flokkist ekki sem skattur heldur sem þjónustugjald. Kostnaðartengslin ættu að tryggja að efnisleg tenging verði á milli gjaldskyldunnar og þeirrar þjónustu sem notandinn fær.“
Ef við förum þessa leið, virðulegi forseti, þá er ekki hægt að byggja upp eigið fé í félaginu. Það er bara þannig, þannig að hv. þingmaður er með nefndarálit sem er þvert á það sem hann er að lýsa. Við erum enn þá á þeim stað, virðulegi forseti, að við erum að reyna að átta okkur á — við vitum öll markmiðin, við erum öll sammála um þau. Svo erum við ekki búin að ræða það sérstaklega hér, gerum það seinna í umræðunni, að þetta kemur ofan á allt annað sem er búið að setja hér á, skatta og gjöld, og lofa alltaf samgöngubótum. En ef þú ætlar að gera þetta, virðulegi forseti, eins og hv. þingmaður setti í nefndarálitið, þá náum við ekki því sem hv. þingmaður var að lýsa áðan.
Síðan er það auðvitað þannig, virðulegur forseti, að það liggur alveg fyrir varðandi C-hlutann að þú þarft að uppfylla ákveðin skilyrði til þess að það sé C-hluta félag og þú getur ekki haft bein pólitísk afskipti þegar komið er að framkvæmdum og öðru slíku. En ég held að það skipti máli fyrir okkur, og það sé skynsamlegt að gera það strax, að við tölum okkur út um það hvernig við sjáum aðkomu kjörinna fulltrúa að stærstu samgönguframkvæmdum þjóðarinnar. Eða er hv. þingmaður (Forseti hringir.) tilbúinn til þess að fara þá leið að hann sem þingmaður hafi ekkert um þetta að segja og þurfi að útskýra það fyrir sínum kjósendum?