157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:00]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Nú fannst mér kveða við nýjan tón, heldur neikvæðari í garð málsins, því að þetta er gott mál og það er alveg ljóst að þó að það standi og sé lesinn þarna upp ákveðinn þáttur í nefndarálitinu, sem var alveg rétt farið með, þá útilokar það ekki gagnsæi og að neytandinn eða sá sem fer um vegina skynji að það sem hann greiði fari svo sannarlega í umrædda framkvæmd, að það sé borð fyrir báru og að það renni einhverju leyti hluti af þeirri upphæð inn í innviðafélagið til þess að þar byggist upp púður til að fara í næstu framkvæmd. Það kemur mér á óvart að hv. þm. Sjálfstæðisflokksins sé á móti þessu.

Annað sem mér finnst einkennilegt og ég vona að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins láti af, þ.e. að þegar verið er með eitthvert sjálfstætt — við erum að hleypa af stað hér félagi, sem hefur verið reynt áður og það voru hér þreifingar og jafnvel tilraunir til þess að fara svipaða leið áður en ekki var samstaða um það. Nú er okkur að takast þetta og ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins komi hér með jákvæðar tillögur til að gera málið betra. En mér finnst þessi þáttur sem var dreginn hér fram vera hálfgerður orðhengilsháttur, sérstaklega ef litið er á þær breytingartillögur sem liggja fyrir í nefndarálitinu. Ég vonast svo sannarlega til þess að hv. þingmaður kynni sér málið örlítið betur og átti sig á því að hér er gott mál sem getur orðið mikill akkur til uppbyggingar innviða á Íslandi. Það væri jákvætt að þingheimur allur sameinaðist um þetta mál í stað þess að vera að hengja sig í þetta orðalag þegar breytingartillögur ganga einmitt í aðra átt.