157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:02]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja við þessu andsvari. Hv. þingmaður er að gera athugasemd við að ég sé að lesa upp úr hans eigin nefndaráliti (SigurjÞ: Nei.) og að ég sé að hengja mig í það orðalag. Virðulegur forseti. Ég var bara að lýsa nefndaráliti sem hv. þingmaður skrifaði undir.

Hv. þingmaður segir að ég eigi að kynna mér þetta mál betur. Við höfum nú reynt að kynna okkur þetta, ekki bara í þessari fátæklegu umfjöllun nefndarinnar heldur líka fengið helstu sérfræðinga sem eru að undirbúa þetta og þeir eru bara ekkert á því að þetta sé málið. Reyndar tala þeir sérstaklega um, eins og kemur fram í lagatextanum, skilgreind samgöngukerfi, sem á ekki við vegna þess að skilgreind samgöngukerfi gera það að verkum að þú ert að taka fleira undir og þér er heimilt að gera það ef það er innan 150 km, getum við sagt, samgönguleiðar. Ég fór yfir það í minni ræðu en það eru þær upplýsingar sem við fengum, ekki í hv. þingnefnd heldur fengum við sérfræðinga vegna þess að við fengum ekki upplýsingarnar og umfjöllunin var svo fátækleg í nefndinni. Þá er niðurstaðan einfaldlega þessi, og hv. þingmaður á ekkert að tala við mig, hv. þingmaður þarf að setjast niður með meiri hlutanum og þið þurfið að ákveða hvort þið ætlið að halda ykkur við þetta. (SigurjÞ: Þú ert svo neikvæður. )Er ég svo neikvæður? Ég er mjög jákvæður. Hv. þingmaður verður bara að átta sig á ábyrgð sinni í þessu máli. Hv. þingmaður verður að setjast niður með meiri hlutanum og ákveða hvort þið ætlið að halda ykkur við þetta. Ætlið þið að gera það eða útfærsluna sem var kynnt fyrir okkur af sérfræðingum, um skilgreint samgöngukerfi og að það sé ekki um þjónustugjald að ræða heldur annars konar gjöld sem geri það að verkum að það komi inn fjármagn í móðurfélagið þannig að þú náir þessum snjóboltaáhrifum?

Ég fagna því alltaf þegar hv. þingmaður kemur í andsvar við mig. Mér finnst það alltaf gaman en hv. þingmaður þarf að setjast niður með sínu fólki og ákveða hvað þeir eru að meina áður en lengra er haldið.