innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir prýðilega ræðu og aðeins koma inn á tvennt. Annars vegar: Hvernig náum við jafnvægi á milli þess að vera með sjálfstætt innviðafélag og að vilji og heildarsýn Alþingis á samgöngumál og uppbyggingu innviða nái fram að ganga? Það gerum við með því að setja inn í lögin að innviðafélagið byggi í verkefnum sínum á samgönguáætlun og setja síðan inn í samgönguáætlun bæði stjörnumerkingar á þau verkefni sem geta komið þar til greina og viðbótarverkefni sem Alþingi finnst áhugavert að innviðafélagið skoði. Síðan kemur auðvitað til kasta kynningar, eins og þingmaðurinn nefndi, þegar byrjað er að undirbúa samninga um þetta. Það er ekki ólíklegt að það komi inn sérlög og frekari samþykktir. En þetta er ákveðin jafnvægislist milli þess að virða sjálfstæði félagsins þannig að það sé í C-hluta og að tryggja þessa aðkomu og sýn Alþingis, ekki bara með kynningum heldur með samþykkt samgönguáætlunar.
Í öðru lagi var þingmaðurinn að fjalla um, getum við sagt, ákveðið jafnvægi sem er milli þess að hafa skýrt gegnsæi og samhengi milli þess í hvaða verkefni er ráðist og hvar og hversu mikið er innheimt af veggjöldum, og hins vegar þann vilja, sem ég skynja hjá þingmanninum og ég deili, að félagið geti eflst með tímanum og að þetta verði svona snjóboltaáhrif eins og við höfum séð í Danmörku og Færeyjum þannig að það geti tekist á hendur stærri og fleiri verkefni með tímanum. Það getur verið að við þurfum að skoða hvort það þurfi að hnykkja á því í lagatextanum með frekari breytingum á frumvarpinu. Ég boðaði það hér í framsöguræðunni að fjárlaganefnd myndi kíkja á það á milli umræðna í sameiningu.