innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mér heyrist að hv. þingmaður sé kominn á þann stað, sem er gott og skynsamlegt, að við þurfum að vinna þetta betur. Hvort við náum að gera það núna í vor verður auðvitað að koma í ljós. En það er augljóst að sá texti, sem ég ætla nú ekki að lesa einu sinni enn, getur ekki staðið svona í nefndaráliti. Við þurfum líka að hafa skýrt hvers konar gjöld félagið er að taka því að þjónustugjöld munu ekki valda snjóboltaáhrifum. En síðan þurfum við auðvitað líka að ræða það — og nú er þetta bara rétt farið af stað og ég hef ekki séð hvað menn eru búnir að stjörnumerkja og hvernig menn afgreiða það formlega í samgönguáætlun. En við erum strax fallin á prófinu vegna þess að nú er búið að lofa Fljótagöngum. Loforðið er alveg skýrt og ég hef ekki heyrt neinn draga það til baka. Þeir sem eru búnir að undirbúa þetta segja okkur að þetta séu bara ein göng. Það er sagt að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð, þetta séu ein göng. Það eru 15% af framkvæmda- og rekstrarkostnaði sem fást með veggjöldum. Afgangurinn, 18,5 milljarðar, er hvergi en menn eru samt sem áður byrjaðir að lofa því að innviðafélagið geri þetta. Innviðafélaginu er það ekki heimilt og jafnvel þó að félagið myndi ákveða að gera þetta er ekki heimild fyrir því gagnvart því regluverki sem við höfum undirgengist í gegnum Evrópska efnahagssvæðið. Það er ekki heimilt að fara þá leið. Þannig að við verðum auðvitað að ræða það hvernig við ætlum að gera þetta. Við hljótum að vera sammála um að menn geti ekki mætt hér og segja bara varðandi allt það sem stendur út undan í samgönguáætlun: Heyrðu, innviðafélagið, það mun redda þessu, þegar það mun augljóslega ekki gera það. Þannig að mér finnst augljóst að við þurfum að ræða þann þátt á dýptina.