157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil sömuleiðis þakka þessi svör og vangaveltur varðandi fjármögnun Fljótaganga. Innviðafélagið hefur ekki verið stofnað. Það hefur ekki tekið verkefni til greiningar og þannig ekki tekið afstöðu til þess hvaða verkefni falla þar undir. Í greinargerð með frumvarpinu eru Fljótagöng hins vegar sérstaklega nefnd og varðandi fjármögnun þeirra er alveg rétt að vegna þess að umferðin er ekki meiri en svo þá þarf að koma eiginfjárframlag með því verkefni ef það fer inn í innviðafélagið. Það gæti þá verið innan ramma samgönguáætlunar ef innviðafélagið tekst á hendur það mörg og stór verkefni að þar skapist svigrúm eða þá að gera þarf ráð fyrir sérstakri fjármögnun. Við komum að þessum tímapunkti þegar í fyrsta lagi liggur fyrir hvort verkefnið fari inn í innviðafélag, hvaða eigið fé þyrfti þá að fylgja með því og hvaða breytingar það verkefni og önnur sem tengjast innviðafélaginu kalla á í samgönguáætlun.