157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:14]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að ítreka athugasemdir mínar sem ég hef nú farið með um það að við skulum vera að funda á þessum degi í fyrsta skipti í sögu sjómannadagshelgarinnar, með einni undantekningu. Við ákváðum að funda árið 2015 þegar setja þurfti neyðarlög á sunnudagskvöldi. Ég mun því ræða svolítið um þennan dag, sjómannadaginn, og tengja þetta inn í það sem ég vil kalla kannski eitt öflugasta innviðafélag sem þjóðin á og væri gott fordæmi að mörgu öðru sem við gætum gert með betri hætti. Á þessari helgi fögnum við stéttinni sem lagði grunninn að nútímasamfélagi á Íslandi. Við fögnum fólkinu sem sækir björg í bú á gjöful en oft og tíðum duttlungafull mið. Saga sjómannadagsins er saga um samstöðu, kjark og velferð. Hún á rætur sínar að rekja til millistríðsáranna, kreppuáranna. Sjómannadagsráð var stofnað 25. nóvember árið 1937. Það var undir forystu Henrys Hálfdanarsonar og annarra hugsjónamanna sem þá þegar voru miklir frumkvöðlar í uppbyggingu öryggismála sjómanna og björgunarstarfs á Íslandi. Fyrsti sjómannadagurinn var haldinn 6. júní 1938. Hann var þá fyrst og fremst haldinn hátíðlegur í Reykjavík og á Ísafirði. Þann dag söfnuðust 10.000 manns saman á Skólavörðuholtinu í Reykjavík í snörpum norðangarra til að sýna sjómönnum samstöðu og virðingu.

Frá upphafi snerist þessi dagur ekki bara um hátíðahöld og snýst ekki um það heldur enn í dag, heldur um virðingu og samfélagslega ábyrgð. Á þessum árum voru miklar fjársafnanir í gangi. Á fyrstu hátíðunum og við útgáfu Sjómannadagsblaðsins rann það fé beint í að byggja upp öruggt skjól fyrir aldraða sjómenn. Árið 1957 rættist síðan sá draumur með vígslu Hrafnistu í Reykjavík að þar var komið upp hjúkrunarheimili eða elliheimili, eins og það var kallað, fyrir aldraða sjómenn. Það var síðan fjármagnað með happdrætti DAS. Það var svo árið 1987 sem Alþingi lögfesti þennan dag, sjómannadaginn, sem er á morgun. Þessi helgi er auðvitað orðin sjómannadagshelgi þar sem hátíðahöld fara fram um allt land, bæði í dag og á morgun.

Þingið hefur í gegnum söguna sýnt þessari helgi mikla virðingu með því að halda friðinn. Aðeins í örfá skipti hefur þingheimur þurft að funda um sjómannadagshelgina, og í raun og veru ekkert í örfá skipti heldur aðeins í eitt skipti. Það var á sunnudagskvöldið árið 2015 um þessa helgi, á sjómannadeginum, sem var, ef ég man rétt, 7. júní, vegna þess að þá var verið að afnema gjaldeyrishöft og það þurfti að vera búið að setja lög sem ekki var hægt að setja með löngum fyrirvara áður en Seðlabankinn og markaðir opnuðu á mánudagsmorgni. Það sýnir hversu ríkur í sessi þessi dagur er í okkar samfélagi. Það eru tímamót þegar ákveðið er hér að láta ágreining yfirtaka þessa helgi, sem aldrei hefur gerst áður. Sama hvað hefur gengið á í þinginu þá hefur verið friður um það að gefið væri frí þessa helgi.

Það fylgir þessari hátíð líka mikill tregi og djúp virðing. Íslenska þjóðin hefur goldið dýru verði fyrir gæði hafsins. Á 20. öldinni einni saman fórust rétt um 3.600 íslenskir sjómenn á sjó. Ef taldir væru með erlendir sjómenn sem létust í okkar lögsögu er talan þó nokkuð vel á fimmta þúsund. Það er hægt að nefna marga atburði og mörg ár sem stóðu upp úr á þessum tíma. Árið 1941 var til að mynda eitt mannskæðasta árið þegar 139 íslenskir sjómenn fórust í skugga heimsstyrjaldarinnar. Það er líka hægt að rifja upp Halaveðrið árið 1925 þar sem 73 íslenskir sjómenn misstu lífið á einum sólarhring. Á fyrri hluta síðustu aldar fórust að jafnaði 70 sjómenn á hverju einasta ári. Það má reyna að leiða hugann að því tómarúmi og þeirri sorg sem ríkti í sjávarbyggðum landsins.

En saga íslenskrar sjómennsku er ekki bara harmsaga. Hún er líka saga um takmarkalausan baráttuanda, ótrúlegan viljastyrk og söguleg björgunarafrek. Við getum rifjað upp 12. desember árið 1947 þegar breski togarinn Dhoon strandaði undir hinu snarbratta Látrabjargi í kolvitlausu bálviðri, frosti og snjókomu. Það átti enginn von á því að nokkur maður gæti lifað af. En bændur og björgunarsveitarmenn í nágrenninu hugsuðu ekki um eigið öryggi. Þeir gengu í nístandi gaddi yfir fjallvegi, sigu niður hundruð metra hátt og þverhnípt bjargið í myrkri og tókst með ótrúlegri útsjónarsemi að bjarga 12 skipverjum lifandi af strandstað. Þetta afrek vakti heimsathygli og sýndi hvað býr í íslenskri samstöðu þegar líf liggur við.

Við getum rifjað upp söguna af manninum sem sigraði sjálft hafið með hreinum viljastyrk þegar í marsmánuði 1984 vélbátnum Hellisey VE hvolfdi tæpar 3 mílur austur af Heimaey. Áhöfnin lenti í ísköldum sjónum og þrír komust á kjöl en fljótlega stóð aðeins einn maður eftir, Guðlaugur Friðþórsson. Í stað þess að gefast upp hóf hann fimm klukkustunda sund í 5° köldum sjó og kolniðamyrkri, áttavitalaus, í átt að landi. Þegar hann loks náði landi í klettunum við eyjuna gekk hann berfættur yfir nýrunnið hraunið, hvasst hraun, blóðugur, alla leiðina til byggða. Þetta er dæmi um mannlegan lífsvilja og þrautseigju og lýsandi fyrir það harðfylgi sem einkennir íslenska sjómenn.

Það eru sögur sem þessar, ásamt tækniframförum og skipulögðu öryggisnámi Slysavarnaskóla sjómanna, sem hafa breytt öllu á síðustu árum. Það er stærsti sigur okkar sem siglingaþjóðar. En sjómannadagurinn og sjómannadagshelgin eru að þessu leyti brú milli fortíðar og framtíðar og sýna okkur að við getum bognað en við brotnum ekki. Um þessa helgi minnumst við þeirra sem fóru, þökkum þeim sem björguðu og fögnum þeim sem hafa komið heilir heim.

Það er ekki að ástæðulausu, virðulegur forseti, að við sýnum þessari helgi virðingu, höfum gert það hér á hinu háa Alþingi í gegnum áratugi. Aðstæður hafa breyst í þessu eins og svo mörgu, eða hverjum dytti það í hug að vera að nota 1. maí-helgi, ef 1. maí bæri alltaf upp á helgi, að vera hér með þingfundi um einhver deilumál, að blanda deilum á Alþingi inn í slíka daga? Verkalýðsbaráttan hefur líka breyst. Hún hefur tekið miklum breytingum. En samt er þessi dagur haldinn hátíðlegur, af því að eins og sjómannadagshelgin er 1. maí brú milli fortíðar og framtíðar. Það er ekki hollt neinni þjóð, og allra síst hér á hinu háa Alþingi, að gleyma uppruna sínum, uppruna þjóðar. Við eigum að halda virðingu við söguna sem er mikilvæg á tímum sem þessum. Það er hægt að segja margar sögur sem í gegnum tíðina hafa snert taugar landsmanna þegar kemur að þessu mikla starfi, þessum mikla árangri sem við höfum náð.

Ég gríp hér niður, með leyfi forseta, í sögu Slysavarnafélags Íslands, bók sem er undir heitinu „Mannslíf í húfi“. Þar er Hannes Þ. Hafstein, fyrrverandi forstjóri Slysavarnafélagsins og yfirmaður Tilkynningarskyldunnar, að segja frá gleðilegri stund þegar þeir gátu fært fólki góðar fréttir. Hann nefnir eitt vetrarkvöld á fyrstu árum Tilkynningarskyldunnar áður en vakt var allan sólarhringinn:

Það var hið versta norðanveður sem hafði brostið á nokkuð skyndilega. Við vissum af bátum út af Norðurlandi og því var ákveðið að hafa vakt um nóttina. Um miðnætti var hringt heim til mín og sagt frá því að enn hefðu þrír bátar ekki komist í landvar. Ég fór í Skylduna til að vera vaktmanninum til aðstoðar og þegar ég kom þangað var mér sagt að ungur drengur hringdi með reglulegu millibili til að spyrjast fyrir um einn þessara báta. Við fylgdumst með bátnum í gegnum Siglufjarðarradíó en haugasjór var á þeim slóðum sem þeir voru. Þegar ég hafði verið þarna nokkra stund hringdi drengurinn enn einu sinni. Ég notaði þá tækifærið og spjallaði við hann og spurði hvers vegna hann væri alltaf að hringja. Hann sagði: Hann pabbi minn er um borð í bátnum. Það mátti greinilega og glögglega heyra áhyggjur í röddinni. Ég sagði honum að vera rólegur, allt væri í lagi um borð og ég myndi hafa samband þegar bátarnir kæmust í landvar. Nokkru síðar fengust þær fréttir að bátarnir hefðu komist heilu og höldnu í var við Skagaströnd. Þá hringdi ég strax í drenginn til að færa honum fréttirnar. Ég gleymi því aldrei þegar hann gaf frá sér andvarp af feginleik og sagði síðan: Það er gott. Þá get ég farið rólegur að sofa.

Ég held að svona sögur rifji mjög margar sjómannsfjölskyldur upp um þessa helgi. Ég tengist mjög náið sjómannsfjölskyldum. Ég hef sjálfur verið til sjós, bæði á vertíðarbátum og síðan á handfærabátum og línubátum og ég hef farið í marga róðra norður á Siglufirði. Ég veit alveg hvernig það er þegar menn eru að fara út við alls konar aðstæður í alls konar veðrum yfir veturinn. Þá eru það fjölskyldurnar sem hafa áhyggjur. Auðvitað er tæknin breytt og samskiptin og möguleikarnir á samskiptum orðnir allt aðrir. En þetta er alltaf undirliggjandi. Það er af virðingu við þetta fólk, virðulegur forseti, sem við höldum þessa helgi hátíðlega. Og þingmenn, mjög margir sem ekki eru hér í dag eðli máls samkvæmt, eru farnir til sinna svæða úti um land til að taka þátt í þessum hátíðahöldum. Þó að Reykjavík sé enn ein stærsta verstöð landsins þá er þessu svolítið öðruvísi farið hér og fólk gleymir svolítið þessum uppruna og þeirri virðingu sem ber að sýna þessum degi.

Það hefur tekist alveg ótrúlega vel að byggja upp öryggismálin, björgunarmálin og rekstur björgunartækja og slíkt. Þannig má tengja þetta inn í umræðu hér um innviðafélag vegna þess að sennilega er Slysavarnafélagið Landsbjörg stærsta eign þjóðarinnar í sjálfstæðu innviðafélagi. Það á ekki síst rætur í fólkinu sem þar starfar, gefur sér tíma og rúm til að sinna þessum störfum á svo margvíslegum vettvangi. Þetta innviðafélag býr yfir gríðarlega miklum eignum sem eru auðvitað þjóðareign og hafa að mestu leyti verið keyptar fyrir styrki og fjáraflanir sem almenningur hefur styrkt í þessu landi. Það er hægt að rifja það upp að fyrsta björgunarskip sem var keypt til landsins var keypt hingað árið 1920, en þá rann upp sá dagur þegar fyrsta björgunarskip Íslendinga, björgunarskipið Þór, kom til Eyja. Það var Björgunarfélag Vestmannaeyja sem stóð að kaupunum á skipinu en það var áður danskt rannsóknarskip sem hét Thor. Kaupin voru gerð með fjárhagslegum stuðningi úr landssjóði en hugmyndin og drifkrafturinn komu algerlega frá Eyjamönnum sjálfum.

Aðalhlutverk Þórs var í upphafi að hafa eftirlit með fiskibátum Eyjamanna á hinum erfiðu vertíðum og sinna björgunarstörfum þegar á þurfti að halda. Það kom fljótlega í ljós að þörfin var mikil fyrir slík skip. Það var vissulega á þeim tíma sem voru stórtækar og ólöglegar veiðar uppi í landsteinum af erlendum togurum og þeir sýndu íslenskum sjómönnum oft mikinn yfirgang. Það var því árið 1924 sem dómsmálaráðuneytið ákvað að nýta skipið til landhelgisgæslu fyrir landið allt. Þar með varð Þór formlega fyrsta varðskip Íslendinga sem gat veitt erlendum veiðiþjófum viðnám. Rekstur varðskipsins reyndist sjálfboðaliðafélaginu, Björgunarfélagi Vestmannaeyja, mjög þungur fjárhagslega þegar fram í sótti. Niðurstaðan varð því sú að ríkissjóður keypti skipið af Eyjamönnum og tók að fullu við rekstri þess 1. júlí 1926. Síðan er þessi dagur talinn formlegur stofndagur Landhelgisgæslu Íslands. Þarna sýndi þetta félag frumkvæði sem leiddi til stofnunar ákveðins innviðafélags.

Árið 1929 var síðan Slysavarnafélag Íslands stofnað og einingar þess hver af annarri á árunum sem á eftir komu. Þetta innviðafélag hefur gengið, getur maður sagt, vonum framar. Þetta félag er líka að halda upp á sinn hátíðisdag á sjómannadeginum. Sjóbjörgunarflokkar félagsins, sem eru til í öllum bæjum og þorpum hringinn í kringum landið, eru burðarás í þeim hátíðahöldum sem eiga sér stað á hafnarsvæðum þessara byggða. Það eru eflaust margir hér sem hefðu viljað kíkja á það og taka þátt í því. Ég er einn af þeim. Ég hef gjarnan verið á þessum degi og þessari helgi við vígslu nýrra björgunarskipa. Nú stendur félagið, hið mikla innviðafélag í almannaeigu, í stærstu fjárfestingum í sinni sögu þegar verið er að endurnýja 13 stór björgunarskip félagsins vítt og breitt um landið. Það var ákveðið hér á þingi með þingsályktunartillögu, sem var vísað til ríkisstjórnar á sínum tíma, að leggja til að ríkissjóður kæmi að þessum kaupum. Það hefur gengið eftir og hefur verið fylgt eftir af núverandi ríkisstjórn þar sem 50% af kaupverði skipanna, heildarfjárfesting er yfir 4 milljarðar, eru greidd úr ríkissjóði á þessum árum. Öðruvísi hefði þetta ekki verið hægt. En eftir stendur rekstur og slíkt sem er í höndum þessa stóra innviðafélags.

Virðulegur forseti. Ég harma það að við skulum vera hér á þessum degi í fyrsta skipti í sögu Alþingis og setja þennan blett á starfsemi þingsins og sýna þá vanvirðingu sem mér finnst vera sýnd þeim sem eru að fagna, eins og er á þessum tímamótum, fjölskyldum sjómanna sem eru að fagna um allt land. Þetta má ekki verða að fordæmi sem verður endurtekið.