157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja ræðu mína á að taka undir orð hv. þm. Jóns Gunnarssonar og segja að það er ekki góður bragur á því að vera hér á laugardegi fyrir sjómannadag og sendi góðar kveðjur til sjómanna og þeirra fjölskyldna um allt land. En við ræðum hér um innviðafélag og höfum síðustu daga verið að ræða hér samgönguáætlun sem er samofin innviðafélagi að töluverðu leyti. Það var gagnrýnt hér í umræðu um samgönguáætlun síðustu daga sú röðun sem þingið setti á þessi tvö mál, að ræða samgönguáætlun á undan innviðafélaginu. Hv. þingmönnum fannst að betri bragur væri á því að við myndum ræða innviðafélagið á undan og nú erum við komin í það, sem ég held að sé rétt og gott að gera.

Það hefur verið talað um innviðafélag árum og jafnvel áratugum saman og ég held að flest okkar hér í þessum þingsal, alla vega klárlega núna, séum sammála því að það þurfi að setja á einhvers konar innviðafélag til að létta á og flýta þeim innviðaframkvæmdum og innviðaskuldinni svokölluðu sem er orðin mikil snjóhengja yfir okkur öllum, að létta á henni. Þá hefur hugmyndin verið að búa til innviðafélag sem tekur á stærri fjárfestingarverkefnum, samgönguverkefnum, sem eru arðbær og taka þau til hliðar þannig að þau séu ekki að taka upp framkvæmdafé úr samgönguáætlun sem geti þá farið í óarðbærari verkefni um allt land.

Mjög margar útfærslur á innviðafélagi hafa verið nefndar og hér erum við að ræða eina. Það sem ég geri hins vegar m.a. athugasemdir við hér varðandi þetta innviðafrumvarp er að ég held að það þurfi að laga nefndarálit meiri hlutans milli umræðna svo að það tali betur við hugmyndafræðina í frumvarpinu og ég hef trú á því að nefndarmenn í hv. fjárlaganefnd muni fara í það verkefni. Ég held að það sé búið að benda mönnum á það hér. En um hvað snýst þetta innviðafélag? Út á hvað gengur þetta verkefni, virðulegur forseti? Jú, það snýst um það, eins og ég skil þetta — það tók okkur töluverðan tíma að átta okkur á því í raun og veru um hvað var verið að tala og í upphafi umræðna um samgönguáætlun þar sem hv. þingmenn voru að ræða um innviðafélagið, bar umræðan þess glöggt merki að menn voru hvorki einhuga né sammála um það nákvæmlega hvernig innviðafélagið ætti að virka í raun. Hingað kom sérfræðingur sem hefur verið að vinna að þessu máli og hitti, held ég, flesta eða alla þingflokka og þingmenn m.a. til þess að skýra út hugmyndafræðina og gera þetta ljósara. Ég held að það hafi verið mjög þarft vegna þess að það skýrðist ýmislegt í því ferli öllu saman varðandi hugmyndafræðina. En við erum að tala hér um einhvers konar vafningsgjörning sem byggist á því að við stofnum hér innviðafélag sem fær til sín tilbúin samgöngumannvirki. Menn hafa nefnt Vaðlaheiðargöng m.a. í því sambandi og Hvalfjarðargöng sem munu verða tekjuberandi fyrir innviðafélagið og geta búið til eigið fé. Síðan er þá hugmyndin að það verði til einhvers konar dótturfélög, undirfélög undir innviðafélaginu, um hverja einustu framkvæmd, og þegar tekjur koma af þeim verkefnum fari þær inn í innviðafélagið sem á þá að geta komið með fjármagn inn í aðrar framkvæmdir eða að það er hægt að lána út á eigið fé og fasteignirnar sem þarna eru fyrir. Gott og vel, virðulegur forseti. Ég held að þetta sé ágætt.

Eftir stendur að við erum með verkefni, og nú nefni ég Fljótagöng sérstaklega í því samhengi, sem er ljóst að mun ekki standast markaðsprófið, þ.e. að þau eru ekki arðbær fjárfesting. Ég hef sérstaklega áhyggjur af því verkefni og hef sagt það og mig langar að eyða pínu tíma hér, virðulegur forseti, í að ræða það og skýra út af hverju, einfaldlega vegna þess að ef það er vilji þings og ef það er vilji hæstv. ríkisstjórnar að fara í Fljótagöng, eins og hæstv. innviðaráðherra fór hér yfir í óundirbúnum fyrirspurnum í vikunni, að það væri klár vilji og ætlun ríkisstjórnarinnar og hæstv. ráðherra að fara í Fljótagöng, þá er það svolítið sérstakt að það sjáist hvorki í fjármálaáætlun né samgönguáætlun. Það er sérstaklega tekið á því í samgönguáætlun að Fljótagöng séu utan fjármögnunar. Ég held að þetta sé 1,1 milljarður á þremur árum sem eru áætlaðir í jarðgangagerð, en ég held að áætlaður kostnaður við Fljótagöng sé 18 eða 20 milljarðar. Það er því alveg ljóst að það vantar þarna inn fjármagn ef menn eru í alvörunni að tala um að fara í það verkefni. Sömuleiðis hef ég áhyggjur af því, ef Fljótagöng eiga að vera á dagskrá 2027, að við séum bara því miður ekki komin nógu langt í undirbúningi í því ágæta og þarfa verkefni.

Hvað segir þetta þá? Við erum náttúrlega hér með lög um opinber fjármál og þar eigum við að setja inn í fjármálaáætlun hvernig ríkisstjórnin og ráðherrar sjá fyrir sér þróun ríkisútgjalda og tekna til næstu fimm ára. Það er svolítið sérstakt, verð ég að segja, virðulegur forseti, þar sem það er, held ég, einhugur um, ég hef alla vega ekki heyrt í neinum hv. þingmanni sem andmælir því, að Fljótagöng eigi að vera í svokölluðum A-hluta ríkissjóðs, A3-hluta, sem er þá fjármagnaður af ríkinu í fjárlögum, að þau skuli ekki vera í fjármálaáætlun. Það sætir undrun þess sem hér stendur að búið sé að taka ákvörðun um það af hálfu ríkisstjórnarinnar, innviðaráðuneytisins, að þetta verkefni eigi að fara af stað og þó að það eigi að setja það inn í innviðafélag, að það sé ekki gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun þar sem það er alveg vitað hver stærðin er, virðulegur forseti, að þarna þarf að setja fjármagn inn í verkefnið. Gott og vel.

Gallinn á frumvarpinu snýr einmitt líka að þessari gjaldtöku og mig langar að fara aðeins inn á það næst sem snýr að þessari heimild innviðafélagsins til að safna upp eigin fé. Eins og ég kom inn á áðan þá hef ég nú trú á því að þetta verði lagað vegna þess að það er ljóst að frumvarpið gengur ekki upp eins og það er núna, einfaldlega vegna þess að þetta þjónustugjald sem innviðafélagið á að veita er einungis heimilt að rukka fyrir uppbyggingu á þjónustu við vegina. Það er alveg ljóst að ef þessu verður ekki breytt þá verður það eigið fé eða sú „premía“, virðulegur forseti, ef ég leyfi mér að sletta, sem eftir verður í innviðafélaginu, svo rýr til langs tíma litið að það verður erfitt fyrir innviðafélagið að safna upp einhverjum raunverulegum fjárheimildum til að geta farið þá í önnur verkefni og stutt við þau sem eru minna arðbær. Nefni ég þar Öxnadalsheiðargöng, sem ég held að standist markaðsprófið upp á 60%. Þá þarf 40% eigið fé þar á móti frá innviðafélaginu, sem mun taka mjög langan tíma fyrir innviðafélagið að safna upp ef þessu verður ekki breytt með þjónustugjaldið.

Mig langar líka aðeins að ræða þessar útfærslur varðandi þennan C-hluta og A-hluta. Ég hef svo sem alveg skilning á því, hafandi verið í fjárlaganefnd síðan ég settist inn á hv. Alþingi, og skil alveg hugmyndafræðina á bak við það að reyna að setja upp innviðafélag og setja innviðafélag í C-hluta og hafa þá óarðbær verkefni inni í A-hluta og bjóða síðan upp á þessi PPP-verkefni samhliða. Þarna erum við komin með þrjár mögulegar útfærslur af leiðum sem hægt er að velja úr, sem ég held að sé ákveðin skynsemi í, að vera ekki bara með eina leið heldur bjóða upp á fleiri möguleika sem geta hentað mismunandi verkefnum á bæði mismunandi tíma og eftir staðsetningu á landinu.

Annað sem hefur verið gagnrýnt hér, virðulegur forseti, og ég skal alveg viðurkenna það að ég deili áhyggjum sem þar hafa verið, snýr í raun og veru að aðkomu Alþingis; að með því að setja á laggirnar innviðafélag séum við að einhverju leyti að ýta frá okkur ákvörðunarvaldi Alþingis á uppbyggingu samgöngumannvirkja í landinu. Það er alveg ljóst, virðulegur forseti, og það þarf ekkert að fara í mikla skoðun til að sjá að þegar við verðum komin með innviðafélag sem á að fara í stærstu framkvæmdir landsins, nefni hér Hvalfjarðargöng, Sundabraut, Kjalarnes og Öxnadalsheiðargöng, svo eitthvað sé nefnt, þá erum við náttúrlega búin að ýta ákvörðunarvaldi frá Alþingi. Sömuleiðis ef við bætum síðan Betri samgöngum ofan á þetta þá er ljóst að stærsti hlutinn af uppbyggingu samgöngumannvirkja verður utan seilingar þingsins.

Það er alveg ljóst í því formi sem hér er verið að leggja til, að gera sérhlutafélag á sama hátt og Isavia eða Landsnet, við eigum kannski frekar að horfa á Landsnet í þessu tilfelli, að þrátt fyrir að það segi í frumvarpinu og breytingartillögum að það eigi að kynna þetta fyrir fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd þá er það náttúrlega bara kynning og það er algerlega ákvörðun innviðafélagsins og stjórnar innviðafélagsins í hvaða verkefni félagið fer og hvenær það fer í þau. Þó að við séum hér með einhvers konar stjörnumerkt og merkt verkefni inni í samgönguáætlun sem eru ætluð innviðafélagi þá er það ljóst að pólitísk aðkoma eða aðkoma þingsins og stjórnvalda er ekki heimil, hún er ólögleg. Það er því alveg ljóst, og ég tek undir þá gagnrýni sem eru kannski meira áhyggjur, virðulegur forseti, að með þessu fyrirkomulagi erum við búin að setja töluvert mikinn hluta og stærstan hluta utan þess sem við hér í þessu húsi og þessum sal getum haft skoðun á hvar og hvenær verður byggt upp. Innviðafélagið í sínum ákvörðunum er eingöngu bundið af hagsmunum félagsins, rekstri þess, á meðan við hér á Alþingi þurfum að horfa m.a. á samfélagsleg áhrif þegar við erum að ákveða forgangsröðun samgöngumannvirkja. Við horfum á byggðasjónarmið sem eru og geta verið gríðarlega sterk og skipta máli. Ég meina, samgöngur eru lykilæð og lykilþáttur í öllum byggðaaðgerðum sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Án samgangna er Ísland illbyggilegt og við höfum séð það af mörgum dæmum á síðustu árum hvað samgöngubætur geta gjörbreytt lífsskilyrðum á ákveðnum landsvæðum og tengt betur saman byggðir, geta tengt saman þjónustu, þannig að það þarf ekkert að hafa mörg orð um þá miklu vigt sem byggðavinkillinn hefur í öllum ákvörðunum varðandi uppbyggingu samgöngumannvirkja. Síðast en ekki síst er það öryggisþátturinn sem við horfum á. Þar nefni ég enn og aftur Fljótagöng þar sem við horfum beinlínis upp á það að vegurinn er að hliðrast til um, held ég, 90 eða 100 cm á ári í átt að sjó. Auðvitað eru gríðarlegir öryggishagsmunir þar og víða eru vegir ótryggir og þarf að fara í framkvæmdir til að lyfta upp öryggisstöðlum vega. En, eins og ég segi, ákvörðun innviðafélagsins byggist eingöngu á fjárhagslegum hagsmunum félagsins.

Mig langar hér, virðulegur forseti, að eyða síðustu mínútum ræðu minnar í að ræða aðeins veggjöldin sjálf. Ég geri mér grein fyrir því að það er umræða sem við eigum eftir að taka miðað við þær breytingar sem lagðar hafa verið til. Varðandi frumvarpið þá er það ekki þingið eða ráðherrann sem kvittar upp á veggjöldin eða upphæðina, það er í raun og veru félagið sjálft. Þar þarf að skerpa á, virðulegur forseti. Félagið getur ekki einhvern veginn tekið ákvörðun um að rukka 10.000 kr. í gegnum Sundabraut, svo ég taki nú ýkt dæmi. Það þarf að vera einhvers konar þak á því og einhverjar skorður sem við þurfum að setja inn þannig að félagið nái að hafa sína premíu svo það geti byggt upp sitt eigið fé. En á sama tíma þurfum við að gæta þess að það sé ekki verið að rukka óhóflega almenning og fyrirtæki landsins, sem munu nýta þessar samgöngubætur.

Það er þannig líka, virðulegur forseti, að ég held, og ég talaði um það í ræðu minni um samgönguáætlun og ætla að gera það aftur núna, að við þurfum að taka umræðu um það hvað í raun samfélagið getur greitt í veggjöld. Við þurfum að taka þá umræðu. Ef maður skoðar tillögur og kynningar frá Betri samgöngum og innviðafélagi og bætir síðan við kílómetragjaldinu, þá held ég að þetta séu í kringum 40 milljarðar á ári sem eru áætlaðir í veggjöld á ári. Ég er ekki með tölurnar fyrir framan mig, virðulegur forseti, ég er að tala eftir minni, en ég reiknaði þetta saman eftir að hafa fengið kynningu bæði frá innviðafélagi og Betri samgöngum í hv. fjárlaganefnd. Ég velti því bara fyrir mér, því nú höfum við verið að hækka kolefnisgjöld og það eru bifreiðagjöld og vörugjöld: Hversu lengi getum við haldið svona áfram? Það hlýtur að vera einhvers staðar punktur þar sem við segjum bara: Heyrðu, nú erum við bara komin of langt og við þurfum að draga úr. Við getum ekki bara endalaust bætt við. Það er punkturinn. Það er ekki hægt að bæta við kolefnisgjaldið, bæta við kílómetragjaldið, bæta við vörugjöldum, bæta við bifreiðagjöldum, bæta svo við flýti- og tafagjöldum á höfuðborgarsvæðinu og svo kemur innviðafélagið með veggjöld. Ég held að við þurfum sem þing og sem þjóð að taka umræðu um það hvað er eðlilegt að við borgum til samgöngumála. Mínir útreikningar, og aftur, virðulegur forseti, ég hef þá í kollinum á mér, ekki á blaði, sýna mér að með þessum gjöldum öllum saman erum við komin langt umfram 1,7% af vergri landsframleiðslu, sem er markmiðið með því að ná hér skattheimtu og gjaldtöku af umferð.

Ég held að ég sé búinn að fara yfir helstu punkta sem mig langaði að ræða hér um þetta innviðafélag og hlakka til að eiga í orðaskiptum við hv. þingmenn ef einhverjir vilja koma hér í andsvör við mig um þetta mál.