157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:55]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Hann fór um víðan völl í sínu erindi og margt mjög áhugavert þar. Mig langar til að eiga við þingmanninn orðastað um ákveðin atriði í nefndaráliti frá meiri hluta fjárlaganefndar og kannski skýringar. Það stendur hér, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn leggur áherslu á gagnsæi í reikningshaldi félagsins þannig að samband veggjalda og tiltekinnar samgönguframkvæmdar sé ljóst. Það mætti t.d. gera með stofnun dótturfélaga um hverja framkvæmd fyrir sig eins og nefnt er í greinargerð með frumvarpinu og í umsögn lífeyrissjóða. Slíkt fyrirkomulag ætti líka að tryggja að veggjald flokkist ekki sem skattur heldur sem þjónustugjald. Kostnaðartengslin ættu að tryggja að efnisleg tenging verði á milli gjaldskyldunnar og þeirrar þjónustu sem notandinn fær.“

Nú velti ég fyrir mér, ef við horfum bara til þess að hér sé að rísa mannvirki og að það þurfi að fjármagna og framkvæma og allt sem að því snýr og síðan hefst þá gjaldtaka. Mér finnst skorta nokkuð á að horft sé til þess hvað gerist yfir tíma, þegar t.d. uppgreiðslu er lokið á viðkomandi mannvirki. Eru þá gerðar kröfur um að það fari fram einhvers konar endurútreikningur á því gjaldi sem heimilt er að setja á? Ef þetta á að vera þjónustugjald — eða hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að það verði t.d. komið í veg fyrir að þetta sé í rauninni einhvers konar skattheimta?