157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:57]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða spurningu sem snýr að þjónustugjaldinu eða skattheimtunni. Þetta er eitt af stóru málunum í þessu frumvarpi nákvæmlega eins og ég skil það. Innviðafélaginu er náttúrlega óheimilt að rukka skatt, það hefur ekki heimild til þess. Það getur hins vegar rukkað gjöld, alveg eins og ég fór hér yfir áðan í minni ræðu varðandi þjónustugjöldin. 17. gr. vegalaganna er alveg skýr hvað þetta varðar, hvað í raun og veru má túlka sem þjónustugjald. Það er uppbyggingin versus þá þjónustan. Ef það verður ekki skýrt betur, eins og ég skil þetta, og það er reyndar breytingartillaga um það að 17. gr. eigi ekki við, ef ég man rétt, í nefndarálitinu, en það þarf að skýra það betur og ramma það miklu betur inn hvað er heimilt að rukka fyrir eftir að framkvæmdin er að fullu greidd. Eins og þetta er núna þá er það þannig að þegar þjónustugjaldið, sem er kannski 1000 kr. fyrir ferðina, þegar við verðum búin að borga niður fjárfestinguna er eini kostnaðurinn sem eftir stendur við mannvirkið snjómokstur og eitthvert minni háttar dútl og þá gæti þjónustugjaldið samkvæmt þessu þurft að lækka niður í tíkall. Það er þá eina þjónustan sem gjaldið á að standa undir. Þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni og þarna þarf að skerpa á.