157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[12:59]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held einmitt að það sé kallað eftir því að þetta mál sé skýrt nánar. Mig langar í mínu seinna andsvari að herma upp á þingmanninn afstöðu hans til þess hvort innviðafélagið sem slíkt hafi mögulega allt of mikið um það að segja hvaða verkefni í samgönguáætlun verða á dagskrá og forgangsröðun verkefna. Ef við horfum til nefndarálitsins þá stendur hér, með leyfi forseta:

„Miðað er við að ráðherra geri samning við félagið um rekstur og uppbyggingu samgönguverkefna á grundvelli samgönguáætlunar.“

Þarna hlýtur maður að velta fyrir sér: Mun félagið ákveða röð þeirra valkosta sem eru fyrirliggjandi í samgönguáætlun þannig að það sé í rauninni félagið sem ákveður forgangsröð verkefna en ekki ráðherrann eða þingið? Það finnst mér athyglisvert að heyra.

Einnig langar mig til að spyrja hv. þingmann að því hvort hann sjái það fyrir sér að verkefni sem eru minna arðbær, og jafnvel kannski þannig að þau þurfa ríkismeðlag, að það gæti í rauninni komið upp sú staða að ríkið væri þingað, ef innviðafélagið ákveður að fara af stað með slíka framkvæmd, í að koma með fjármagn í kosti sem t.d. ríkið hefur ekki gert ráð fyrir að yrðu á tímabili t.d. fjármálaáætlunar, svo dæmi sé tekið?