innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir mjög áhugaverðar vangaveltur. Ég tek undir áhyggjur og vangaveltur hv. þingmanns hvað þetta varðar. Eins og ég skil frumvarpið þá er það alveg ljóst að það er innviðafélagið sjálft sem tekur ákvarðanir um sín forgangsmál. Það er hins vegar gert með samningi við innviðaráðuneytið og maður áttar sig ekki alveg á því hvernig það samtal á að fara fram þar sem það eiga ekki að vera pólitísk afskipti af félaginu. Við höfum séð stjörnumerkingu í samgönguáætlun og varðandi áhyggjur hv. þingmanns eða vangaveltur um röðunina og hvort við séum að tala um einhverja hilluvöru í samgönguáætlun sem félagið getur valið hvað það vill gera hverju sinni, þá er náttúrlega ein leiðin sú að það sé bara eitt stjörnumerkt hverju sinni.