innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir prýðilega ræðu. Ég held að þessar umræður endurspegli tvennt. Annars vegar að þingheimur deilir þeirri þörf sem er á þessu nýja verkfæri til þess að fara fyrr í framkvæmdir, fjármagna þær og koma þeim í mark. Það eru líka ýmsar eðlilegar spurningar varðandi hvernig þetta spilar saman við samgönguáætlun og í tilviki þingmannsins líka fjármálaáætlun. Fljótagöng eru bara ágætisdæmi til þess að bæði sýna fram á tækifærin og líka ákveðið flækjustig. Fljótagöng eru stjörnumerkt og koma til skoðunar hjá innviðafélaginu. Ef þau fara þar inn þá liggur hins vegar fyrir að þeim þarf að fylgja eiginfjárframlag vegna þess að umferð er takmörkuð. Til að svara því hvort fjármagn til Fljótaganga án þessa eiginfjárframlags rúmist innan samgönguáætlunar þarf fyrst að svara því hversu stór og umsvifamikil verkefni flytjast af samgönguáætlun inn í innviðafélag því innan samgönguáætlunar mætti hugsa sér að fjármagna þetta eiginfjárframlag ef innviðafélagið er nægilega stórhuga í því. Ef það er hins vegar ekki þá þarf að koma til sérstök fjármögnun því það sem liggur fyrir er alveg skýr yfirlýsing um að ráðist verði í Fljótagöng. Þó að útfærsla fjármögnunar liggi ekki fyrir, samanber það sem ég fór yfir áðan — og vona að fólk fylgi þessum þræði, þetta er aðeins flókið en um leið og raundæmi mun fara að leggjast niður fyrir okkur þá mun þetta skýrast í praxís.