157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:05]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni kærlega fyrir fínasta andsvar þó að ég greindi ekki spurningu í því, en gott engu að síður. Ég bara þakka hv. þingmanni fyrir að reyna að varpa aðeins ljósi á það hvað hvernig menn sjá þetta fyrir sér varðandi Fljótagöngin. Ég verð að segja að ég er aðeins ringlaður vegna þess að ég geri mér grein fyrir því að á samgönguáætlun eru stór verkefni sem innviðafélagið getur mögulega tekið að sér og þá skapast svigrúm í samgönguáætlun sem er þá hægt að nýta inn í Fljótagöng.

Ef ég man þetta rétt, virðulegur forseti, þá er nú upptalning á einhverjum verkefnum sem gætu þá komið inn ef við færum t.d. í að henda Kjalarnesinu inn í innviðafélag þó að það hafi nú verið gagnrýnt út af hjáleiðavandræðum þar. Ég man ekki eftir að hafa séð Fljótagöngin nefnd í því samhengi. Það er bara fínt að það sé fram komið í umræðunni að menn séu að hugsa þau þar inn en þá er alveg ljóst að þau verkefni sem eru talin þar upp sem hugmyndir að framkvæmdum sem væri þá hægt að fara í ef Kjalarnesið færi út, sem eru 6,3 eða 6,4 milljarðar, þá náttúrlega eru menn ekki að fara í þau ef menn eru að fara í Fljótagöngin. Ég skil alveg að fyrir marga, og þann sem hér stendur líka, sé þetta svolítið flókið. Það eru enn þá svolítið af spurningum sem eru á reiki í hausnum á hv. þingmönnum hér og almenningi þegar maður talar við þau um þetta innviðafélag. En það sem er jákvætt, virðulegur forseti, er að þetta skýrist eftir því sem umræðan hefur þroskast hér á þingi.