157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir andsvarið og bara ítreka það að stærðargráðan á stjörnumerktum verkefnum hleypur á tugum milljarða, ef allt er talið 78 milljörðum, þannig að það veltur á því hversu mikið af þeim verkefnum fari inn í innviðafélag hversu mikið svigrúm skapast í samgönguáætlun. Þar með gætu bæði Fljótagöng og þessi verkefni upp á 6,3 milljarða komist að. En það á eftir að stofna innviðafélagið, það á eftir að greina þessi verkefni og það á eftir að skilgreina hjáleiðir eða framúrskarandi þjónustu almenningssamgangna o.s.frv. á þeim leiðum. Þannig að þessi vinna er eftir en ég bind vonir við að við getum botnað þessar spurningar, fjármögnunina og hvernig henni verður hagað, næsta vetur hér í þinginu.