157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:09]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Ég vona svo sannarlega að það komist botn í þetta, hvernig þessu verður öllu saman háttað, því að þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta náttúrlega um þessi verkefni. Eðlilega eru bæði þingmenn og almenningur áhugasamir um það að það skýrist sem allra fyrst og menn fari að sýna á spilin hvernig þetta mun raðast upp og í hvaða forgang menn ætli að setja þessi verkefni og hvað kemst inn og hvað ekki. Ég er bara sammála hv. þingmanni hvað það varðar að vonandi skýrist þessi mynd sem allra fyrst vegna þess að það skiptir verulegu máli.