157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:10]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir ágæta ræðu. En það var einn liður í henni sem mig langaði að spyrja sérstaklega út í. Svona almennt meðal stjórnarandstöðunnar hefur gætt örlítillar neikvæðni, tel ég vera, í garð byggingar Fljótaganga. Menn hafa jafnvel verið að tína upp steina hér og þar til að leggja í veg fyrir umræðu um framkvæmdina. Mér fannst örla örlítið á því. Þess vegna væri þarft að fá það bara skýrt fram hér hjá hv. varaformanni Framsóknarflokksins hvort hann sé ekki með okkur í stjórnarliðinu í því að leita allra leiða til þess að þessi framkvæmd mátist inn í innviðafélagið með einum eða öðrum hætti svo af þessu verði. Að við finnum þá annaðhvort bein framlög inn í innviðafélagið eða þá, ef þetta mátast ekki þar inn, að við séum þá samhentir í því að koma þessari framkvæmd á koppinn.