innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni kærlega fyrir andsvarið. Ég verð bara að spyrja, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hér áðan í sínu andsvari við hv. þingmann, hvort hann hafi ekki hlustað á ræðuna. Ég skil ekki hvernig hann gat fundið það út að ég væri á móti Fljótagöngum á einhvern hátt. Ég hef aldrei talað þannig. Ef ég man rétt þá held ég að ég og hv. þingmaður höfum verið saman í stjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar á sínum tíma sem var m.a. að berjast fyrir Fljótagöngum. Hvort ég sé tilbúinn að koma með þeim á vagninn í því? Ég hef staðið með Fljótagöngum. Ég hef talað fyrir Fljótagöngum árum saman og mun ekki hætta því. Ég hef hins vegar áhyggjur, eins og ég sagði hérna áðan, varðandi fjármögnunina og ég hef fengið skýringar á því frá hv. þm. Degi B. Eggertssyni hvernig hann og hæstv. ríkisstjórn, eða meiri hlutinn hér, hugsar Fljótagöngin. En ég man ekki eftir því að það hafi áður komið fram með þessum hætti hér í umræðum. Það er ágætt að fá það fram og bara gott að fá það fram. En ég segi það og endurtek það, þar sem hv. þingmaður er nú formaður hv. fjárlaganefndar, að það er alveg ljóst að þau verkefni sem búið er að taka ákvörðun um að eigi að fara í á næstu árum, þau eiga að vera inni á samgönguáætlun og í fjármálaáætlun. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því, virðulegur forseti, að það er ákveðið flækjustig varðandi innviðafélagið í þessu samhengi. En auðvitað hefði verið miklu betri bragur á því að menn hefðu bara eyrnamerkt fjármagn strax til ganganna og getað þá fært það inn í innviðafélagið seinna, ef það hefði verið niðurstaðan.