157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:13]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir andsvarið og fá þetta skýrt og skorinort. Ég held að mörgum íbúum Fjallabyggðar sé létt að fá þetta bara á hreint, að Framsóknarflokkurinn styður þessa framkvæmd burt séð frá því hvort það mátast inn í innviðafélagið eður ei. Sama má örugglega segja um Fljótamenn og íbúa Hofsóss og alla, í rauninni fyrir Tröllaskagann í heild sinni, því að þarna opnast auðvitað öruggari leið fyrir ferðamenn til að fara þennan hring. Þar er, eins og við vitum báðir, alveg frábært útsýni og þetta er einn af þeim möguleikum sem við höfum í ferðaþjónustunni, þannig að það er mjög mikilvægt að fá þetta á hreint. En við erum hér að hleypa af stokkunum félagi sem hefur sjálfstæði. Við erum að hleypa því af stað og það mun fara yfir lögmál félagsins, þeir þátttakendur sem vilja vera með í því, þ.e. fjárfestar og aðrir sem munu mögulega hafa hug á því að leggja fé inn í félagið — hvort þetta verkefni mátist þar inn. Það eru því fleiri en akkúrat þeir sem eru hér inni sem þurfa að meta það hvort Fljótagöng passi inn í innviðafélagið en þingmenn þjóðarinnar. Þannig að það að segja fyrir fram eða gefa eitthvert ákveðið út um hvort það verði, verður bara að ráðast út frá þeim lögmálum og ákvörðunum sem félagið, sem verður sjálfstætt, tekur út frá þeim hagsmunum sem þar eru undir. En hvert svo sem mat félagsins verður þá eru Fljótagöng næst í röðinni. Það er mikilvægt að það sé á hreinu og að menn séu ekkert að vandræðast með það, heldur er mikilvægt að þingmenn, sem flestir, styðji þá ákvörðun.