157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar maður var rétt búinn að sleppa orðinu um að málið væri að skýrast, það væri að þroskast vel hér í þinginu, þá kom hv. formaður fjárlaganefndar og talaði þannig í hringi að það var eiginlega ómögulegt að skilja hvert hv. þingmaður var að fara. Ég meina, það er öllum ljóst og hefur öllum verið ljóst mjög lengi, eða flestum, að félagið mun ekki standast markaðspróf innviðafélagsins. Það hefur komið mjög skýrt fram í öllum kynningum félagsins. Fljótagöng munu ekki ná markaðsprófinu. Þar af leiðandi kemst það ekki inn í félagið öðruvísi en að vera A-hluta félag, sem þýðir það að ríkissjóður þarf að setja fjármagn inn í félagið. Það eru engir fjárfestar að koma inn í þetta félag. Þetta er ríkisfélag í A3-hluta ríkisreikningsins. Þetta er skýrt, virðulegur forseti, hefur alltaf verið skýrt. Og að fara að tala um það hér að það þurfi að horfa á einhverja fjárfesta og einhverja aðra aðila sem þurfi að koma að þessu verkefni áður en það verður klárt er bara ekki rétt. Það er bara ekki rétt. Ef það væri rétt, hvernig getur þá hv. þingmaður fullyrt það að Fljótagöng verði næst í röðinni ef innviðafélagið á að taka þetta til sín og fara að meta það hvort þetta sé hæfur kostur eða ekki? Þá höfum við hér í þessum sal bara ekkert um verkefnið að segja. Menn verða aðeins að gæta að því hvernig þeir koma hérna fram og hvað þeir segja, sérstaklega þegar menn eru formenn fjárlaganefndar, vegna þess að það er margt óskýrt í þessu innviðafélagi. En þetta hefur allan tímann verið algerlega kýrskýrt: Ef menn ætla að setja Fljótagöng inn í félagið þá er það A3-hluta félag sem ríkið þarf að borga, mögulega með 85% eða 90% eigin fé og 10% eða eitthvað slíkt í veggjöldum. Við skulum hafa staðreyndirnar á hreinu í þessu máli, virðulegur forseti. Nægur er ruglingurinn fyrir.