157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:18]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Við erum hér að ræða mál um að setja á koppinn innviðafélag. Markmið félagsins er að það muni fjármagna og hrinda í framkvæmd afmörkuðum stórum samgönguverkefnum. Með því er stigið mikilvægt skref í átt að fjölbreyttari verkfærum fyrir stjórnvöld til þess að koma verkefnum af stað. Það er lykilhlutverk félagsins að það sé vel afmarkað. Það á að vera fjármögnunar- og verkstýringarfélag, það á ekki að fara í einhverja eftirlíkingu af Vegagerðinni. Vegagerðin mun halda áfram að bera kerfisábyrgðina en innviðafélagið verður miklu frekar fjármögnunarfélag og mun taka verkefnaábyrgð á þeim framkvæmdum sem því eru faldar.

Málið er að við erum hér að búa til sjálfstætt félag sem mun vonandi laða að sér aukið fjármagn inn í málaflokkinn til uppbyggingar. Það gefur okkur svigrúm til þess að fara í aðrar framkvæmdir sem eru kannski ekki vel til þess fallnar að borga sig sjálfar, ef maður orðar það svo. Einhver orðaði það þannig að þær séu ekki arðbærar, en auðvitað eru flestar, ef ekki allar, vegaframkvæmdir, samgöngumannvirki, um land allt arðbærar ef út í það er farið. Þær eru kannski ekki arðbærar einar og sér en ef maður horfir til byggðaaðgerða, hvaða áhrif þær hafa á uppbyggingu atvinnulífs, m.a. ferðaþjónustu og aðra þætti, þá eru þær auðvitað arðbærar ef litið er til fleiri þátta en þeirrar umferðar sem fer um vegina sjálfa.

Það hefur komið fram hér að menn í stjórnarandstöðunni eru eitthvað að toga þetta og teygja og telja jafnvel að verið sé að setja einhverja vegi sem þegar eru byggðir inn í innviðafélagið og það muni hefjast hér stórtæk innheimta á veggjöldum, jafnvel til Keflavíkur. Það er ekki hugmyndin með þessu félagi heldur er markmiðið að fara af stað með nýjar framkvæmdir og skapa þá rými fyrir framkvæmdir sem falla ekki endilega vel inn í innviðafélagið. Þá skapast fjármagn eða verður meira eftir af fjármagni til að fara í þær framkvæmdir. Það er miður hvernig menn hafa dregið hér aftur og aftur Fljótagöng inn í málið. Það er alveg ljóst að ein og sér munu þau kannski ekki falla vel inn í innviðafélagið en með fjárframlagi gætu þau fallið þar inn. Mér finnst mikilvægt að menn séu ekki að draga úr eða að grafa undan trúverðugleika þeirra framkvæmda, eins og menn virðast vera að gerast hér sekir aftur og aftur um, heldur að menn horfi á þetta félag með jákvæðum augum en það eru auðvitað ýmsir þættir í þessu sem menn verða að huga að.

Sjálfstæði félagsins, þ.e. að það hafi ákvörðunarrétt um hvaða framkvæmd er farið í og að stjórnvöld hafi ekki beinan ákvörðunarrétt eða séu ekki að taka beinar ákvarðanir heldur búi til skapalón um hvaða framkvæmdir henti inn í félagið, er mikilvægt upp á það að menn geti þá notið krafta og þekkingar, m.a. frá fjárfestum, til þess að framkvæmdir verði mögulega hagkvæmari og sömuleiðis til þess að félagið geti fallið undir það að vera C-hluta félag. Hin leiðin er auðvitað, ef menn vilja ekki fara þessa leið, að fara annaðhvort í lántöku með beinum hætti eða hækka skatta. Þeir sem hafa komið hér upp í þennan ræðustól fyrr í umræðunni hafa kannski ekki endilega verið talsmenn þess heldur. Svo ég ítreki það enn og aftur hér í umræðunni: Þetta eru nýjar leiðir til þess að auka svigrúm og hraða uppbyggingu innviða í landinu öllu. Þó svo að ýmis verkefni falli ekki beint undir þetta þá skapast hér rými fyrir aðrar framkvæmdir, eins og fram hefur komið, m.a. í ágætri ræðu hjá hv. framsögumanni þar sem bent var á að ef vegaframkvæmdir færast inn í innviðafélagið verður t.d. meira rými til að taka á einbreiðum brúm og fleira þess háttar.

Þegar verið er að ræða þessi mál þá verðum við líka að horfa til þess að veggjöld hafa lengi verið á dagskrá, um árabil, sem lausn á því hvernig við getum fjármagnað vegakerfið með öðrum hætti en einungis með sköttum. Það sem ríkisstjórnin er að gera núna og meiri hlutinn á þingi er að við erum að hrinda þessu í framkvæmd. Þetta er okkar leið sem hefur mikla kosti vegna þess að þetta mun augljóslega hraða framkvæmdum. Að einhverju leyti má mögulega merkja að andstaðan við þetta mál og þetta flækjutal fram og aftur sé vegna þess að stjórnarandstaðan hefði viljað vera hér í okkar sporum að ljúka málum. En nú erum við að gera það og við erum ánægð með þetta mál. Það hefur komið hér fram að þetta sé ekki fullbúið og að þetta sé ekki nægjanlega unnið og ég veit ekki hvað og verið hér alls konar úrtöluraddir í umræðunni. En, herra forseti, í því ljósi er ágætt að rifja það upp að á liðnum þingvetrum frá því að þessi meiri hluti tók við völdum þá minnist ég varla þess skiptis að nokkuð mál sem hafi verið borið hér upp af ríkisstjórninni hafi verið nægjanlega vel unnið að mati stjórnarandstöðunnar.

Við vinnslu þessa máls og í umræðunni höfum við auðvitað litið til þess hvernig nágrannar annars staðar á Norðurlöndum hafa flýtt stórframkvæmdum. Ég held að það sé mjög jákvætt vegna þess að ef eitthvað skortir hér á Íslandi þá er það uppbygging innviða. Það hefur bara verið uppsöfnuð innviðaþörf upp á nokkur hundruð milljónir í vegakerfinu. Þetta er leið til að bæta þar úr og auðvitað þarf hún að þroskast. Þetta félag verður sjálfstætt og mun að einhverju leyti öðlast sjálfstætt líf. En verður það án afskipta Alþingis? Nei, og það er tekið á því í breytingartillögum. Það er einnig tekið á því að í stað þess að það verði afmarkað hver og ein framkvæmd sem fari inn í félagið þannig að ekki megi innheimtast einhver króna umfram akkúrat það sem má skilgreina inn í félagið — það verður ekki. Nú er gert ráð fyrir því að það safnist eitthvert örlítið eigið fé í félaginu en samt þó ekki þannig að vegfarendur sem fara um viðkomandi vegi, hvort sem það verður Sundabraut eða ekki, skynji það ekki að það sem þeir greiða í veggjöld fari annað. Það verður að vera skilgreint að fjármagnið fari að megninu til í þá framkvæmd sem verið er að nota. En það má ekki vera þannig að það sé það strangt bókhald að það myndist ekki eigið fé inni í félaginu. Það er gert með ráðum vegna þess að það auðveldar að hægt sé að halda áfram og ráðast í næstu stórframkvæmd.

Ég vona að menn sjái þetta mál í því ljósi að þetta er nýtt tæki til uppbyggingar á samgöngukerfinu og það er mikil þörf á því. Við þekkjum það sérstaklega sem búum á landsbyggðinni að það er gríðarleg þörf á félaginu og að því farnist vel. — Ég segi þá máli mínu lokið hér.