157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:28]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu hér um þetta mál, innviðafélagið. Þetta er um margt áhugavert mál. Það sem hefur kannski staðið umræðum hér fyrir þrifum og eftir atvikum kannski líka í störfum nefndarinnar — ég ætla svo sem ekkert að fjalla um störf nefndarinnar hér — er að hér hafa talsmenn meiri hlutans og ríkisstjórnarinnar komið með, að því er mér virðist, eiginlega svona þrjár útgáfur af málinu, þrjár hugmyndir um innviðafélag. Fyrsta hugmyndin er auðvitað frumvarpið sjálft sem gerir ráð fyrir því að unnt verði að leggja þegar byggð samgöngumannvirki inn í hið nýstofnaða innviðafélag. Það geti lagt veggjöld, til að mynda á Reykjanesbrautina eða Suðurlandsveg, og fjármagnað þar með nýframkvæmdir annars staðar og hraðað þannig uppbyggingu. Það er augljóslega hugmyndin að baki frumvarpinu. Svo kemur hæstv. umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á samfélagsvef sinn og segir að þetta sé auðvitað, með leyfi forseta: „[…] þvættingur og moldviðri út af engu. Engin áform uppi um neitt í þessa veru og slíkt aldrei verið rætt í ríkisstjórn. Næsta mál.“ Punktur.Svo í 1. umræðu málsins átti ég orðaskipti við hæstv. fjármálaráðherra og ég var engu nær. Hann lagði einhvern veginn upp með þá hugmynd að gjaldtaka í Hvalfjarðargöngum að nýju ætti þá að standa undir tvöföldun hennar o.s.frv. Ég ætlaði að spyrja hv. þingmann aðeins út í þetta, hvort hann gæti varpað einhverju ljósi á þessi atriði fyrir mig sem sit ekki í þeirri nefnd sem fær málið til umfjöllunar.