157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:33]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Aðgát skal höfð í nærveru innviðafélags. Ég vil í upphafi geta þess að hugsanleg velgengni hins nýstofnaða rekstrarfélags mun ekki ráðast af því hvernig við tölum um það hér í þinginu áður en það er stofnað né heldur markaðssetningu ríkisstjórnarinnar heldur akkúrat af rekstraráætlun og öðru. Rekstraráætlanir munu auðvitað ráða því hvort fjármögnunaraðilar séu tilbúnir að leggja félaginu lið. Þar gengur dæmið bara ekki upp eins og ég var að freistast til þess að fá einhverjar skýringar á. Þannig að því sé haldið til haga að það er ekki verið að leggja inn í félagið Sundabraut, Fljótagöng eða Ölfusárbrú heldur er ætlunin sú að innviðafélagið taki þessi verkefni til framkvæmda. Til þess að innviðafélagið ráði við það þá þarf það að vera með aðrar eignir sem eru tekjuberandi. Það var uppleggið í frumvarpinu, eins og ég skil það. En hér í þingsal og á samfélagsmiðlum hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er eins og það megi ekki minnast á þetta. Hugmyndin eins og lagt var upp með var bara að hefja gjaldtöku á Reykjanesbraut til að fara að byggja Fljótagöng. Það var hugmyndin og þá getum við bara rætt það. Erum við sammála því? Fólk kann að hafa hinar og þessar skoðanir á því. Bara þannig að því sé haldið til haga, og ég nefndi það í umræðu um samgönguáætlanir í gær, þá er staðan auðvitað sú að þessi ríkisstjórn aflar tekna sem eru 90–100 milljarðar á ári frá samgöngum og umferðinni en ætlar að verja 70 milljörðum rúmlega. Umferðin er auðvitað að borga með sér og hugmyndir um frekari veggjöld til að fara í nýjar framkvæmdir — mér finnst að þetta megi allt bara ræða heiðarlega. Ég segi það bara hér að ég er eindreginn talsmaður þess að við förum í myndarlegar samgönguúrbætur hér á landi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.