innviðafélag.
Herra forseti. Ég er sammála því sem fram kom hjá hv. þingmanni að framtíð félagsins ræðst auðvitað af því hvernig verkefnin eru og hvernig umbúnaðurinn verður og þess háttar þáttum. Það er ekki hægt að bregðast við einhverjum sögusögnum um hvað verði, hvort Reykjanesbrautin verði þarna inni, sem hún á ekki að vera. Vissulega á Hornafjarðarfljótið mögulega að fara þarna inn ef félagið kemst á koppinn, eins og allt lítur út fyrir að vera. En ég vil segja að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar og stjórnarliðsins mega ekki heldur gera lítið úr sér hvað varðar algjört áhrifaleysi vegna þess að margar þessar sögur sem eru hér á sveimi koma einmitt úr þessum ranni. Þannig að fólk er að bregðast við einhverju tali sem er alls ekki ljóst. Ég myndi vilja sjá, hvað varðar svona félag, að það tæki vönduð fyrstu skref og við myndum smám saman byggja upp góðan trúverðugleika hvað varðar félagið þannig að við getum smám saman búið til félag sem almenn sátt er um í samfélaginu. Mér finnst það skipta miklu máli. Þegar menn eru að tala um að það eigi að rukka svo mikið og allt það, þá held ég, og ég er alveg sannfærður um það, að ef það er ekki almenn sátt um það og fólk hefur ekki einhverja vissu fyrir því að það sem það greiðir í veggjöld renni til þeirra framkvæmda sem það notar, þá mun verða veruleg ósátt um það. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um þann þátt. Þetta er mikilvægt mál og við eigum bara að horfa á þessa aðferð með bjartsýni og reyna að byggja upp trúverðugleika og jákvæðni gagnvart félaginu. Ég held að það skipti miklu máli, þannig að fjárfestar, bæði innan og utan lands, sjái þetta sem vænlegan kost.