157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir sína ræðu. Ég verð þó að gera eina athugasemd við hv. þingmann. Ég átta mig ekki á því af hverju hann telur að sú umræða sem hér hefur farið fram, bæði um innviðafélagið en ekki síður kannski um samgönguáætlun sem hefur, leyfi ég mér að segja, verið mjög málefnaleg. Þar hefur verið spurt margra spurninga. Í einhverjum tilfellum eru ekki til svör við þeim spurningum og þá er þeirra leitað því þá er möguleiki að upplýsa eitthvað frekar um þessi mál. Það er auðvitað það sem þessi umræða hér á að ganga út á og ég get ekki skilið hvernig hv. þingmaður kemst að þeirri niðurstöðu að það feli á einhvern hátt í sér að rýra trúverðugleika félagsins. Það eina sem myndi rýra trúverðugleika þessa félags væri að um það væri einhver huliðshjálmur sem enginn kæmist inn yfir. Þá fyrst myndum við sjá tortryggni gagnvart þessu máli.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála þeirri túlkun að þegar mannvirki er risið eða framkvæmdum lokið og það er verið að greiða ákveðin gjöld fyrir notkun á því mannvirki, að þegar mannvirkið er að fullu greitt komi til breyting á gjaldskrá því annars verður erfitt að sjá í mínum huga hvernig við eigum að geta skilgreint þá gangagjaldið, t.d. ef um jarðgöng væri að ræða, eða veggjaldið með öðrum hætti en að nefna það bara skattheimtu. Ég vil gjarnan að hv. þingmaður svari þessum vangaveltum mínum.