157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:42]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svörin og blíðari tón í þessa umræðu. Ég er sammála honum um að auðvitað viljum við sjá að það liggi fyrir, t.d. upp á sáttina að gera. Mig langar í því sambandi að nefna sérstaklega því að hér hafa verið nokkrir kostir taldir sem liggja frá Borgarnesi og inn til höfuðborgarinnar. Það væri auðvitað ankannalegt ef það væri þannig t.d. á Vesturlandi að við værum með uppbyggingu á vegum frá Borgarnesi niður á Akrafjallsveg og myndum greiða veggjöld þar, færum síðan í gegnum Hvalfjarðargöng þar sem við greiddum veggjöld, færum Kjalarnesið sem við greiddum líka veggjöld fyrir og svo færum við yfir Sundabraut þar sem við greiddum veggjöld fyrir. Þarna þarf auðvitað að búa til einhverja samræmingu á gjaldheimtu. Auðvitað er hægt að taka þetta svæði mögulega sem eitt en við höfum ekki séð á þau spil þannig að þetta er bara spurning sem hangir en hún er ekki til þess fallin, held ég, að rýra á nokkurn hátt innviðafélagið. Þetta er bara spurning sem þarf að svara. Ég held að það sé reyndar þannig í þessum sal að hér séu allir fylgjandi því að aukinn kraftur verði lagður í uppbyggingu á vegakerfinu og í samgöngubætur og það sé einhugur um það.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann í mínu seinna andsvari um það af því að ég hef aðeins áhyggjur af forgangsröðun framkvæmda. Nú liggur fyrir að ríkisstjórnin hefur áhuga á því að fara í Fljótagöng og þau eru næst á dagskrá í gangagerð. Þá velti ég fyrir mér, ef maður horfir á umfjöllunina varðandi samgönguáætlun þar sem er verið að nefna t.d. Kjalarnesið: Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að mögulega hafi innviðafélagið aðra sýn á forgangsröðun verkefna en hæstv. innviðaráðherra eða innviðaráðherra og fjármálaráðherra þannig að það væri þeirra val að taka fram annan kost en t.d. Fljótagöng? Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að sú staða gæti komið upp?