innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Það er spurt að því hvort ég hafi áhyggjur af mismunandi skoðunum mögulega framkvæmdastjóra innviðafélags, þegar hann verður ráðinn, eða stjórnar og síðan innviðaráðherra. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Það sem ég hef miklu meiri áhyggjur af er að við erum búin að vera með samgöngumannvirki á teikniborðinu eins og Sundabraut í þrjá áratugi og við erum fyrst núna að komast í gegnum umhverfismat. Ég hef miklu frekar áhyggjur af því, miðað við hvernig hlutirnir hafa gengið, að við komumst ekkert úr sporunum. Þess vegna þurfum við að finna einhverjar leiðir til að gera það. Innviðafélagið er leið til að koma hlutunum af stað og mér finnst það jákvætt. Auðvitað er þetta kerfi ekkert endilega gallalaust. Svona spurning varðandi íbúa Vesturlands, að það hlaðist ekki upp veggjöld á leiðinni til höfuðborgarinnar út í eitt, það þarf auðvitað að mæta þeim þáttum. Ekki síður vegna þess að við þurfum að hafa þokkalega sátt um þessa leið til að hún gangi upp til frambúðar því að öðrum kosti verður hún bara lögð til hliðar. Það er að mörgu að huga í þessu og ég held að þetta félag búi til tækifæri til að gera betur og við þurfum að gera betur, herra forseti.