innviðafélag.
Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða frumvarp um innviðafélag. Ég vil byrja á því að þakka fyrir málefnalega og góða umræðu hér í dag um þetta stóra og mikilvæga mál. Það má segja að það kjarnist í orðunum „flýta, fjármagna og framkvæma“, sem eru þýðingarmikil orð fyrir fyrirhugað innviðafélag, enda er félaginu ætlað að flýta, fjármagna og framkvæma stór samgöngumannvirki. Að þessu verkefni hefur ríkisstjórnin unnið ötullega síðustu mánuði og vonandi erum við hér á Alþingi að klára þetta verkefni núna næstu daga. Innviðafélagið er fjármögnunar- og eignarhaldsfélag fyrir tilteknar samgönguframkvæmdir sem eiga að vera arðbærar. Eftir þessu félagi hefur verið kallað, ekki síst í ljósi þess að svona félag getur skilað verulegum ávinningi fyrir samfélagið til lengri tíma. Hlutverk þessa félags er, með leyfi forseta:
„a. Að fara með eignarhald, fjármögnun, uppbyggingu og rekstur samgöngumannvirkja sem það tekur að sér.
b. Að innheimta veggjöld vegna notkunar samgöngumannvirkja.
c. Að tryggja fjárhagslega sjálfbærni þess við uppbyggingu samgöngumannvirkja.
d. Að tryggja faglegan undirbúning og áhættustýringu vegna ákvarðana þess um fjárfestingar í samgönguinnviðum, í samræmi við lög og viðmið sem gilda um opinberar framkvæmdir.“
Ef við ætlum að ná árangri þegar kemur að samgönguframkvæmdum þurfum við svona félag til þess að geta ræst vélarnar.
Nú ætla ég ekki að fara að skammast út í fyrri ríkisstjórn, það vil ég alls ekki gera. En það var auðvitað flókið fyrir hana á sínum tíma að fara í stórverkefni, bara í ljósi þess að það var ekki til fjármagn. Það varð til þess að jarðgangaáætlun var tekin út úr samgönguáætlun. Sú jarðgangaáætlun hljóðaði upp á 185 milljarða kr. og segja má að það hafi bara verið óskalisti þáverandi samgönguráðherra. Það gerðist auðvitað ekki neitt af því að það var ekki til fjármagn. Það þurfti eitthvert félag eins og innviðafélag til að hrinda því í framkvæmd. En eins og þingheimur veit og allir landsmenn þá höfum við ekki farið í nein jarðgöng síðan Dýrafjarðargöng voru opnuð árið 2020 þannig að við þurfum eitthvert átak til að koma þessu af stað. Annars getum við bara mallað innan fjárheimilda samgönguáætlunar en við komumst ekki í þessi risastóru verkefni sem eru svo nauðsynleg fyrir land og þjóð þannig að við þurfum einhvers konar félag til að koma þessu áfram.
Það hefur auðvitað verið leitað í þekkingu og reynslu nágrannaþjóða okkar við stofnun þessa félags, en þær hafa notað innviðafélög og ríkisaðila til að sjá um fjármögnun stærri samgönguframkvæmda. Þar er auðvitað verið að horfa til reynslu Dana af verkefnum Sund & Bælt og til Nye veier í Noregi. Og ekki síst er leitað í reynslu vina okkar í Færeyjum þannig að við höfum reynslu þessara vinaþjóða okkar við stofnun þessa félags. Það er mikilvægt að þetta félag er C-félag. Það verður ekki í A-hluta ríkissjóðs þannig að það skiptir miklu máli varðandi fjármögnunina og gerir okkur kleift að fara í fleiri framkvæmdir en ella. En svo það geti orðið þarf félagið að vera sjálfstætt til ákvarðanatöku sem byggir á viðskiptalegum grunni og með faglegu verkefnavali. En hins vegar mun félagið einnig vinna með samfélagsleg markmið, að tryggja hraðari framvindu stórra samgönguverkefna.
Stefnt er að því að með félaginu verði hægt að ráðast í viðamikla uppbyggingu innviða þannig að uppbyggingin hafi, eins og ég sagði áðan, takmörkuð áhrif á skuldir ríkissjóðs. Það hefur komið skýrt fram í umræðunni að félaginu verður heimilt að innheimta veggjöld og þannig skapast skilyrði fyrir langtímalántöku sem nýtist til að fjármagna verkefnin, sem gerir það mögulegt að hraða uppbyggingu umfram hefðbundin ríkisverkefni.
Umræða um veggjöld hefur þroskast mjög mikið síðustu ár. Þetta var eldheitt umræðuefni hér fyrir nokkrum árum. Það vildi enginn sjá veggjöld í sínu nærumhverfi. En umræðan hefur þroskast þannig að ég held að margir landsmenn sjái að ef við viljum sjá verulegan árangur í samgöngumannvirkjum þá sé þetta leið til þess að hraða framkvæmdum. Þannig að það er mitt mat að það sé mun meiri sátt um innheimtu veggjalda en var hér fyrir 10–15 árum. En svo er auðvitað líka mikilvægt að félagið geri ráð fyrir að það verði hægt að opna á aðra fjármögnun, t.d. úr lífeyrissjóðum og öðrum sérhæfðum innlendum og erlendum fjárfestum. Það skiptir líka miklu máli.
Við höfum verið hér síðustu daga að ræða samgönguáætlun og inn í þá umræðu hefur líka smitast umræða um innviðafélag, ég segi: eðlilega, af því að þetta er nátengt og auðvitað er fólk að velta fyrir sér hvernig samgönguáætlun og innviðafélag tala saman. Það er bara eðlilegt. Það kemur líka skýrt fram í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að verkefni innviðafélagsins eru stjörnumerkt. Það sem mér finnst líka mikilvægt að hér sé dregið fram er að þegar verkefni eru tekin úr samgönguáætlun og sett inn í innviðafélag þá skapast svigrúm fyrir önnur verkefni í samgönguáætlun. Af því að ég hef heyrt hér í umræðunni síðustu daga að fólk hefur áhyggjur af því að þetta verði eingöngu verkefni sem tengjast höfuðborgarsvæðinu þar sem eru forsendur fyrir mikilli umferð og passi þar af leiðandi inn í innviðafélagið, þá finnst mér líka rosalega mikilvægt að við drögum fram að þá skapast svigrúm í samgönguáætlun til að fara í verkefni sem verða aldrei færð inn á hagkvæmum grunni. Hér hafa verið nefndar brýr úti á landi o.s.frv. og aðrir veghlutar, þannig að mér finnst klókt að sjá hvernig þetta er hugsað.
Ég lít svo á að innviðafélagið sé bara verkfæri sem við höfum til að brjótast úr stöðnun stórframkvæmda. Það getum við gert með innviðafélagi. Þess vegna hefur mér líka þótt umræðan vera málefnaleg og ég heyri ekki annað en að þingmenn skilji að þetta er verkfæri sem við getum nýtt okkur og skilji að ef við ætlum að ná einhverjum árangri verðum við að leita leiða eins og við erum að gera hér með því að stofna innviðafélag. Það hafa auðvitað verið hér gagnlegar umræður sem ég held að við getum skoðað áfram. En ég held að fyrsta skrefið sé að koma félaginu á koppinn, það er lykilatriði, áður en við förum að raða framkvæmdum inn í félagið. Það eru hugmyndir að verkefnum stjörnumerktar í samgönguáætlun. Nú er verkefnið með þessu frumvarpi fyrst og fremst að koma félaginu á koppinn og svo getum við farið að raða samgönguverkefnum inn í innviðafélagið. En með því að samþykkja þetta frumvarp erum við að stíga risastórt skref, að rjúfa kyrrstöðuna sem hefur verið í stórum samgöngumannvirkjum.