innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég get alveg tekið undir að við séum sammála um að við þurfum að gera allt hvað við getum til að koma stórum samgönguframkvæmdum á laggirnar. Um það er samstaða. Hún snýr að því að við séum að búa til þetta tæki. En áhyggjur mínar eru nokkrar. Ég vil spyrjast fyrir um þrennt. Nú er það tekið mjög skýrt fram í nefndaráliti meiri hlutans að þetta snúi að því að taka hvert verkefni fyrir sig, hafa gagnsæi í því og nota þjónustugjöld, sem þýðir það að við getum ekki byggt upp eigið fé í félaginu þannig að snjóboltaáhrifin verða ekki. Það er þvert á þau markmið sem við leggjum upp með. Þannig að ég spyr hv. þingmann: Af hverju er það þarna inni í þessu nefndaráliti? Því að ef sá skilningur er ofan á þá erum við ekki að ná þessum markmiðum sem við erum í rauninni að líta til, og þá er ég að vísa til annarra landa, hvort sem það eru Færeyjar, Danmörk eða annað.
Síðan er hitt að nú er byrjað að lofa framkvæmdum sem allir vilja sjá og mér hefur verið mjög svo tíðrætt um Fljótagöngin vegna þess að það er búið að lofa að fara í þau og talað um að innviðafélagið taki þau. Það liggur hins vegar fyrir að veggjöld munu bara ná að borga 15% af kostnaðinum og það vantar 18,5 milljarða í það. Veit hv. þingmaður hvar þeir fjármunir eru? Og síðan í þriðja lagi: Aðkoma kjörinna fulltrúa. Ég er algerlega meðvitaður um mikilvægi þess að þetta sé á markaðslegum forsendum ef við ætlum að hafa þetta í C-hlutanum. En hins vegar höfum við samt lítið rætt það hvernig forgangsröðun kjörinna fulltrúa þjóðarinnar getur komið fram í verkefnum innviðaráðuneytisins. Það væri áhugavert að heyra hvernig þingmaðurinn lítur á þann þátt málsins.