innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir góðar spurningar. Ég skil að fólk spyrji hér um aðkomu Alþingis að verkefnum innviðafélagsins en ég held að það verði bara að líta á það að félagið verður í meirihlutaeigu ríkisins. Það er auðvitað þess vegna sem settar eru inn tillögur í meirihlutaáliti fjárlaganefndar til að tryggja enn betur aðkomu Alþingis að þessum verkefnum þannig að það fara ekki önnur verkefni inn í innviðafélagið nema þau sem eru stjörnumerkt í samgönguáætlun. Það er alveg ljóst. Innviðafélagið getur ekki bara ákveðið að taka göng sem eru í samgönguáætlun, t.d. Klettsháls. Ég spurði að því í umræðum um samgönguáætlun hvort það hefði ekki verið verkefni sem hefði getað passað inn í innviðafélagið, en innviðafélagið getur ekki valið það, það er ekki stjörnumerkt. Innviðafélaginu ber líka að ræða þessi mál, bæði við fjárlaganefnd og við umhverfis- og samgöngunefnd. Það kemur fram í meirihlutaálitinu hvernig við sjáum það fyrir okkur og ég held að það sé mikilvægt að haft sé samráð við þingið um þessi verkefni og að það sé mikilvægt að hafa þessa stjörnumerkingu.
Svo er umhverfis- og samgöngunefnd er nú þegar búin að stjörnumerkja verkefni en það er samt ekki víst að öll þau verkefni passi fullkomlega inn í innviðafélagið. Hv. þingmaður nefnir hér Fljótagöng sem dæmi um verkefni sem gæti passað þar inn. Ég hef litið svo á að okkar verkefni núna sé að koma á þessu félagi. Svo þarf félagið að skoða hvaða verkefni passa inn í það. Passi Fljótagöng ekki þar inn þá verðum við að fjármagna Fljótagöng með fjármunum beint úr ríkissjóði. Þannig lít ég á það og ég held að það sé nú skilningur flestra. En það kemur líka fram að það er þá hægt að gera samning við innviðafélagið um að það taki að sér framkvæmdir Fljótaganga. En þá verður að koma fjármagn frá ríkissjóði til þess af því að það er ólíklegt, eins og þingmaðurinn nefnir, að þau passi fullkomlega inn í innviðafélagið.