157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[13:59]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Hv. þingmaður segir að þegar komi að aðkomunni sé stjörnumerking og síðan kynning fyrir tveimur hv. þingnefndum. Mér finnst þetta hljóma mjög svipað og Betri samgöngur. Ég segi fyrir mig að ég er mjög ósáttur við það fyrirkomulag sem er þannig að það er eitthvert félag í fullri eigu ríkisins sem er að gera alls konar hluti sem enginn kannast við og enginn vill bera ábyrgð á. Þarna erum við með hundruð milljarða undir og mér finnst þetta ekki gott fyrirkomulag.

En síðan það sem ég var að spyrja um varðandi Fljótagöngin; það er búið að lofa þeim og miðað við þær upplýsingar sem við höfum frá þeim sem undirbúa innviðafélagið þá eru þeir búnir að sjá að það eru bara 15% sem munu duga upp í kostnaðinn af veggjöldum þannig að það vantar 18,5 milljarða. Það er búið að lofa þessu. Það er búið að lofa að fara af stað í þetta á næsta ári af hæstv. ríkisstjórn. Ég spyr þess vegna: Hvar eru þessir fjármunir? Sömuleiðis spurði ég — vegna þess að ég held að það sé mjög mikilvægt, að í upphafi skuli endinn skoða og við þurfum að byggja góðar stoðir undir þetta félag. Og eins og stendur á blaðsíðu 3 í nefndaráliti meiri hlutans, ef þetta er málið þá erum við ekki að búa til snjóboltaáhrif. Þá erum við ekki að búa til eigið fé því að við erum að reka hverja einstaka framkvæmd fyrir sig á þjónustugjöldum, sem þýðir að þú mátt bara taka gjöld sem samsvara fjárfestingunni. Þú mátt ekki dreifa þessu á milli neinna samgöngumannvirkja — sérfræðingurinn talar um að til séu skilgreind samgöngukerfi, eins og hv. þm. Ólafur Adolfsson var hér að ræða um áðan. En hvar eru peningarnir í göngin? Því að það liggur fyrir að þeir þurfa að koma úr ríkissjóði.