innviðafélag.
Virðulegi forseti. Hvaðan koma peningarnir í göngin? Þeir koma væntanlega úr ríkissjóði því að göngin passa væntanlega ekki inn í innviðafélagið nema að hluta til. Það er opnað á þá leið í frumvarpinu að það verði hægt að semja við félagið um að það fari í þessa miklu framkvæmd sem Fljótagöng eru og eru svo sannarlega mikilvæg, ekki síst fyrir íbúa þessa svæðis, og mikilvæg samgöngubót. Að það komi þá fjármagn frá ríkissjóði inn í félagið. Ég held að það sé alveg ljóst að það þarf auðvitað að byrja á því að fara í einhvers konar rannsóknir á berglögum og svona, þannig að allir peningarnir verða ekki til á næsta ári. Maður sér þá líka fyrir að ef Fljótagöng passa ekki inn í innviðafélagið þá eru önnur verkefni í samgönguáætlun sem við getum sett inn í innviðafélagið. Þá skapast svigrúm í samgönguáætlun fyrir Fljótagöng. Svona miðað við aðrar jarðgangahugmyndir sem við höfum heyrt um þá myndi ég halda að — já, að mínu mati eru þau gerleg sem verkefni sem samgönguáætlun getur farið í ef það er búið að taka önnur verkefni út. En það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir: Við erum auðvitað bundin, við höfum ekki ótakmarkað fjármagn og við verðum auðvitað að passa vel hvar við sækjum peninga og hvernig við ráðstöfum þeim.