innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir góða ræðu. Mig langar til að víkja aðeins að svari hv. þingmanns við spurningu hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um tilurð fjármuna varðandi Fljótagöng. Ég heyrði ekki betur en að þingmaðurinn hefði sagt að, eins og birtist t.d. í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, hægt væri að búa til rými inni í samgönguáætlun með því að flytja verkefni til innviðafélagsins. Eins og ég skil lögin um innviðafélagið þá er það þannig að innviðafélagið er algerlega sjálfstætt í því að velja sér þau verkefni sem um er að ræða. Nú kunna að vera verkefni sem, ef við tökum bara Sundabraut — Sundabrautin er reyndar ekki gott dæmi. Tökum þá bara dæmi af Kjalarnesinu; ef það er ákveðið að nota þá fjármuni sem myndast á Kjalarnesinu, heldur hv. þingmaður að þeir aðilar sem horfa á nefndarálitið og sjá hvernig því var skipt upp hér varðandi t.d. kjördæmi og fleira, heldur þingmaður að þessi hópur yrði ánægður með það að ríkisstjórnin væri að ráðskast með nákvæmlega þessa kosti og tefla þeim á móti Fljótagöngum?