157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:05]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann spyr mig hvort þessi ráðstöfun sé að etja íbúum saman varðandi framkvæmdirnar. Eins og ég horfi á þetta núna þá er verkefni okkar nú að koma á fót þessu félagi sem getur orðið til þess að við flýtum framkvæmdum, hröðum þeim og fjármögnum þær svo þær geti orðið að raunveruleika. Mér finnst við stundum vera komin dálítið mörg skref fram úr okkur þegar við, óbreyttir þingmenn, erum farin að raða inn í félagið. Við erum með þessa stjörnumerkingu. Það er vitað að framkvæmdir hér eru mjög ólíkar. Það er ekki hægt að taka veggjöld af þeim öllum. Eins og ég sagði í framsöguræðunni þá held ég að það sé meiri sátt í dag. Af því að hv. þingmaður tók nú dæmi úr okkar kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, þá var auðvitað engin sátt um að hafa gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum en svo bara sættist fólk á það. Þannig að ég held að ef fólk sér að þetta er að koma þá verði það sátt við það.

Nú finnst mér hann setja mig í erfiða stöðu, að taka Kjalarnes eitthvað sérstaklega út fyrir sviga. Ég hafði bara ekkert velt því sérstaklega fyrir mér. Það eru þarna stjörnumerktar framkvæmdir í áætluninni og félagið getur ekkert farið lengra en það. Hvort Kjalarnesið verði fyrst get ég ekkert sagt um. En aðalmálið okkar núna er að koma á fót þessu félagi. Séum við sammála um markmið félagsins og hlutverk þá er það stóra spurningin okkar en ekki að við, óbreyttir þingmenn, séum að svo stöddu að fara að raða inn, af því að það þurfa auðvitað að vera faglegar forsendur og markaðspróf sem ráða því vali.